Innlent

Gat á bensíntanki batt enda á flótta

Gat á eldsneytistanki batt enda á flóttatilraun ökumanns sem grunaður er um ölvunarakstur á Akranesi í síðustu viku.

Lögreglu var tilkynnt um útafakstur til móts við hesthúsahverfið við Æðarodda en þegar lögreglumenn komu á vettvang var bíllinn á bak og burt. Fannst hann kyrrstæður við Hvítanes með tóman olíutank en gat hafði komið á tankinn við útafaksturinn. Maðurinn var skömmu síðar handtekinn og tekið úr honum blóðsýni.

Tveir menn voru til viðbótar teknir í síðustu viku vegna gruns um ölvunarakstur og þá stöðvaði lögreglan á Akranesi níu menn fyrir hraðakstur á sama tíma. Sá sem hraðast ók var á 131 kílómetra hraða þar sem hámarskhraði er 90. Svo bar hins vegar við að enginn var tekinn fyrir of hraðan akstur innabæjar í vikunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×