Innlent

Meira þarf til en að skipta um oddvita

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Hanna Birna Kristjánsdóttir er oddviti Sjálstæðisflokksins í Reykjavík.
Hanna Birna Kristjánsdóttir er oddviti Sjálstæðisflokksins í Reykjavík.

,,Það virðist sem mun meira þurfi að koma til hjá Sjálfstæðisflokknum en að skipta um oddvita," segir Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ.

Í nýrri skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun HÍ vann fyrir borgarstjórnarflokk Samfylkingarinnar mælist fylgi Sjálfstæðisflokksins 29,2%. Frjálslyndi flokkurinn fékk 1,2%, Framsóknarflokkurinn 4,3%, Samfylkingin 48,2% og Vinstri-grænir 17%. Samfylkingin hlýtur hreinan meirihluta samkvæmt könnunni.

Skoðanakönnunin var gerð á tímabilinu 2. - 22. júní. Laugardaginn 7. júní tilkynnti borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins að Hanna Birna Kristjánsdóttir væri nýr oddviti flokksins.

,,Sjálfstæðiflokkurinn á mikið verk fyrir höndum við að vinna til baka það traust sem hann glataði með því að mynda núverandi meirihluta. Bæði vegna þeirra vinnubragða sem viðhöfð voru við myndun þess meirihluta sem og vandræðagangnum sem hefur verið á meirihlutanum," segir Baldur.

Baldur segir niðurstöðu könnunarinnar vera slæma fyrir Ólaf F. Magnússon, borgarstjóra. ,,Útkoma Ólafs er skelfileg og hún er umhugsunarverð."

Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar var gerð dagana 2. - 22. júní og var stuðst við 1200 manna slemiúrtak úr þjóðskrá sem náði til Reykvíkinga á kosningaaldri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×