Halldór vissi af aðgerðum ríkisstjórnar klukkan þrjú 27. júní 2008 14:13 Halldór J. Kristjánsson
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans og formaður stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja, vissi klukkan þrjú um fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna erfiðrar stöðu á fasteigna- og fjármálamarkaði og kynntar voru einum og hálfum tíma síðar síðastliðinn fimmtudag. Þetta er staðfest í yfirlýsingu sem Landsbankinn sendi frá sér í dag. Stuttu eftir að mörkuðum lokaði eða rúmum hálftíma eftir að hann vissi af aðgerðunum sendi Halldór stjórnarmönnum í Samtökum fjármálafyrirtækja tölvupóst um fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Landsbankinn keypti íbúðarbréf fyrir 4,2 milljörðum meira en það seldi þennan sama dag sem var mun meira en dagana áður. Vakti það upp spurningar hvort Landsbankinn hafi haft einhverjar meiri og betri upplýsingar um aðgerðirnar en aðrir bankar. Yfirlýsing frá Landsbanka Íslands hf. Í tilefni af fjölmiðlaumfjöllun varðandi sölu Landsbankans á íbúðabréfum í aðdraganda þess að kynntar voru breytingar af hálfu ríkisstjórnar Íslands á Íbúðalánasjóði vill Landsbanki Íslands hf. koma eftirfarandi á framfæri. Starfsmönnum sem annast viðskipti með skuldabréf af hálfu Landsbankans var alls ekki kunnugt um yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar fyrr en fréttir þar um voru birtar opinberlega. Farið hefur verið yfir sögu viðskipta bankans með skuldabréf þennan dag og engar óeðlilegar hreyfingar koma þar fram. Einungis fern viðskipti voru með íbúðabréf eftir kl. 15.00 þennan dag og í öllum tilvikum var þar um að ræða viðskipti sem byggjast á hlutverki Landsbankans sem viðskiptavaka með viðkomandi bréf. Landsbankinn hafði þannig ekki frumkvæði að sölu umfram það að setja fram tilboð á markaði í samræmi við samning milli bankans og Íbúðalánasjóðs um viðskiptavakt. Halldóri J. Kristjánssyni bárust upplýsingar um að væntanleg væri yfirlýsing um fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar um kl. 15.00 þann 19. júní s.l. sem formanni stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). Hann taldi rétt að gera öðrum stjórnarmönnum aðvart um þessar breytingar og bað Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóra SFF að annast útsendingu til þeirra. Öðrum stjórnarmönnum var gert aðvart um yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar með tölvupósti sem sendur var kl. 15.36 eða sex mínútum eftir að markaði með skuldabréf og hlutabréf var lokað. Af ofangreindu er ljóst að yfirlýsing ríkisstjórnarinnar hafði engin áhrif á ákvarðanir starfsmanna Landsbankans um viðskipti með íbúðabréf og engin óeðlileg viðskipti áttu sér stað af hálfu Landsbankans.
Mest lesið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Maðurinn er fundinn Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Fleiri fréttir Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina út af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Sjá meira