KÍ spyr hvort enn standi til að stytta stúdentspróf 30. janúar 2008 14:00 MYND/GVA
Kennarasamband Íslands gagnrýnir að nýtt frumvarp menntamálaráðherra til framhaldsskólalaga tilgreini ekki einingafjölda eða námstíma til stúdentsprófs. Segir meðal annars í umsögn sambandsins um frumvarpið að ekki megi ráða af því hvort fyrri áform um að stytta námstíma til stúdentsprós og þannig skerða námið lifi enn. Mikið var deilt um þau áform á sínum tíma og var á endanum fallið frá þeim Frumvarpið byggist að hluta til á vinnu starfshópa sem komið var á fót í framhaldi af 10 skrefa samkomulagi KÍ og menntamálaráðherra. Segir í umsögn Kennarsambandsins að margt sé jákvætt í frumvarpinu en sambandið gerir engu að síður athugasemdir við mörg atriði og telur að margt í efni frumvarpsins þarfnist frekari skýringa og úrvinnslu. Sambandið telur að framhaldsskólapróf og fræðsluskylda til 18 ára aldurs séu mikilvæg og vill að fræðsluskyldan feli í sér skilgreindan rétt nemenda til framhaldsskólavistar í grennd við heimili sitt sem myndi t.d. gagnast nemendum á höfuðborgarsvæðinu sem fá ekki skólavist í sínu hverfi.Þá fagnar sambandið því að að íslenskt stúdentspróf verði áfram almennt og víðfeðmt og jafnframt að aukinn sveigjanleiki og fjölbreytni verði í námsinntaki og námsframboði til stúdentsprófs. „Vegna þess að frumvarpið tilgreinir hvorki einingafjölda né námstíma til stúdentsprófs er ekki hægt að ráða af því hvort fyrri áform um að stytta námstímann og þar með að skerða námið lifa enn. Því leggur KÍ til að kveðið verði á um fjölda námseininga til stúdentsprófs í nýjum lögum og Alþingi taki af öll tvímæli um að fyrri áform um styttingu námstíma og skerðingu náms hafi verið ýtt til hliðar," segir í tilkynningu KÍ vegna umsagnarinnar.Enn fremur undirstrikar Kennarasambandið að ekki hefur verið sýnt fram á fagleg gildi þess að breyta núverandi einingakerfi framhaldsskólanna og taka upp svokallaðar ECTS-einingar. Þá telur Kennarasambandið að engin efnisleg rök komi fram í frumvarpinu fyrir lengingu skólaársins önnur en þau sem birtust í skýrslunni Breytt námsskipan til stúdentsprófs (2004) og tengdust áformum um að stytta námstíma til stúdentsprófs m.a. með því að skerða námið. „En í þessu sambandi minnir Kennarasambandið á að menntamálaráðherra hefur lýst því yfir opinberlega , eftir að framhaldsskólafrumvarpið var lagt fram, að umrædd skýrsla og efni hennar hafi verið lagt til hliðar," segir KÍKÍ er enn fremur andvígt breytingum sem frumvarpið leggur til að gert verði á vald- og verksviði kennarafunda og telur að í tillögum um skólanefndir sé farið úr öskunni í eldinn þar sem ekki er lengur tryggt að kennarar eigi þar áheyrnarfulltrúa.Í niðurlagi umsagnar KÍ um framhaldsskólafrumvarpið segir að stjórnvöld verði að setja fram skýr áform um að auknar fjárveitingar til framhaldsskólanna í samræmi við áherslur frumvarpsins á aukna þjónustu við nemendur.
Mest lesið Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Innlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent Fleiri fréttir Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Íslendingur á Spáni sagður þungt haldinn vegna hitaslags „Ómetanlegur fjársjóður“ í heimsókn á Íslandi Tilkynnt um bíl fullan af bensínbrúsum Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Tollarnir sem bíta nú þegar, sögulegur fundur og fjársjóður Fækkar sífellt í Þjóðkirkjunni Rithöfundur ráðinn til varnarmálaskrifstofunnar Barinn við barinn en gerandinn farinn Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Gerðu langtímasamning um niðurgreidd liðskipti og brjóstaminnkun Dagbjartur aðstoðar Daða Má Innviðaráðherra leggur af stað í fundaferð um samgöngumálin Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Fagnar áformum um mótun atvinnustefnu Úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um íkvekju Hlið við Reynisfjöru, tollar og yfirlýsing leiðtoga ESB B sé ekki best Kiðjabergsmálinu hvergi nærri lokið Mannréttindabarátta ekki í samkeppni um athygli Stórfelld líkamsárás og ráðist á dyravörð Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Tilfelli alvarlegrar ókyrrðar gætu tvöfaldast vegna loftslagsbreytinga Óvenjuleg ákvörðun, holskefla kvartana og ókyrrð Upphaflegasta útgáfa Snorra-Eddu snýr heim eftir fjögurra alda útlegð Einnota plastvörur fái sérstaka merkingu Sjá meira