Borgarstjóri frestar ferð til New Ham Breki Logason skrifar 30. janúar 2008 12:19 Ólafur F. Magnússon
Borgarstjóra Reykjavíkur var boðið í opinbera heimsókn til New Ham á Englandi fyrir skömmu. Var ferðin áætluð þann 24. janúar síðast liðinn en hefur verið frestað fram í apríl. Að sögn ritara borgarstjóra kom borgarstjóri New Ham hingað í heimsókn síðasta sumar og átti að endurgjalda þá ferð með því að bjóða borgarstjóra Reykvíkinga til Englands. Það var Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgarstjóri, sem tók á móti New Ham fólkinu á sínum tíma en Dagur B. Eggertsson mun hafa frestað ferðinni. Dagsetningin hentaði illa hér og var vel tekið í að fresta ferðinni fram í apríl. „Það var Dagur sem gekk frá því," segir ritarinn. Heimildir Vísis herma að meiningin hafi verið að fara á leik hjá West Ham á Upton Park en dagsetningin hafi einnig hentað illa til þess. Enginn leikur hafi verið á leikvangnum í kringum 24. janúar. Það er því spurning hvort Ólafur F. hitti á West Ham leik í apríl. En hann hefur meðal annars talað um hæfileika sína á knattspyrnuvellinum á árum áður þegar hann lék með Valsmönnum. Annars er það að frétta úr ráðhúsinu að Ólafur F. hefur ekki enn ráðið sér aðstoðarmann en það er verið að vinna í því hörðum höndum. Sú ráðning er algjörlega á hendi borgarstjóra enda mun viðkomandi vera hans hægri hönd. Nokkur nöfn hafa heyrst sem væntanlegir kandídatar í starfið og hefur nafn fyrrum þingmanns Frjálslynda flokksins, Sigurjóns Þórðarsonar, borið þar hæst.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Sjá meira