Vilja heræfingar í umhverfismat 26. febrúar 2008 16:30 Steinunn Þóra Árnadóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpanna. MYND/Heiða
Sjö þingmenn Vinstri - grænna hafa lagt fram frumvarp á Alþingi þess efnis að heræfingar á íslenskri grundu og í íslenskri lögsögu verði háðar umhverfismati. Bent er á í greinargerð með frumvarpinu að heræfingar hafi verið algengar hér á undanförnum árum og það sé staðreynd að starfsemi af hernaðarlegum toga, þar með taldar heræfingar, geti haft í för með sér mikil og neikvæð umhverfisáhrif. „Hernaðarstarfsemi er oftar en ekki afar mengandi, má í því samhengi benda á mengunarsvæði á og við gömlu herstöðina á Miðnesheiði og gömul skotæfingasvæði bandaríska hersins á Reykjanesskaga," segir enn fremur í greinargerðinni. Auk olíu- og þungmálmamengunar geti heræfingar haft í för með sér umtalsvert ónæði og truflun og dæmi séu um að lágflugsæfingar herþotna hafi raskað ró fólks og komið styggð að dýrum. Einnig hafi aðilar í ferðaþjónustu gagnrýnt harðlega lágflugsæfingar sem skapað hafa stórhættu í hestaferðum með ferðamenn. Stríðsleikir fullorðins fólks Með því að fella heræfingar undir lög um mat á umhverfisáhrifum sé tryggt að hagsmunaaðilar á borð við sveitarfélög, landeigendur, ferðaþjónustufyrirtæki og útivistarfólk geti komið að athugasemdum varðandi framkvæmd og staðarval heræfinga og vonandi minnkað líkurnar á skaða vegna þeirra. „Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að nýjum staflið verði bætt í 12. lið 2. viðauka við lög um mat á umhverfisáhrifum. Færa má rök fyrir því að heræfingar ættu allt eins heima í 11. lið, þar sem m.a. er fjallað um prófunaraðstöðu fyrir vélar og hreyfla og geymslu brotajárns. Niðurstaða flutningsmanna er þó sú að 12. liðurinn, Ferðalög og tómstundir, sé betur lýsandi fyrir stríðsleiki fullorðins fólks," segir að endingu í greinargerð með frumvarpinu.Þá hafa þingmennirnir einnig lagt fram frumvarp um breytingu á skipulags- og byggingarlögum þess efnis að notkun lands til heræfinga utan varnar- og öryggissvæða verði háð framkvæmdaleyfi hlutaðeigandi sveitarstjórnar að fenginni umsögn viðkomandi svæðisskipulagsnefndar.
Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira