Forseti Alþingis heimsótti Dúmuna 19. september 2008 16:57 Íslenski sendihópurinn í Rússlandi
Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, og Hallgerður Gunnarsdóttir eiginkona hans eru í opinberri heimsókn í Rússlandi þessa dagana, í boði forseta Dúmunnar. Með forseta í för eru Ásta R. Jóhannesdóttir, 1. varaforseti Alþingis, Bjarni Benediktsson, formaður utanríkismálanefndar, Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, og Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, auk Helga Bernódussonar skrifstofustjóra Alþingis og Jörundar Kristjánssonar, alþjóðaritara á skrifstofu forseta Alþingis.Ræddu tvíhliða viðskipti landanna Forseti Alþingis og sendinefndin áttu í gær fund með Vladimir G. Titov, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands. Á fundinum voru rædd tvíhliða viðskipti landanna, m.a. á sviði orkumála og samstarf í rannsóknum og vísindastarfi. Þá var rætt um átökin í Georgíu og ítrekaði forseti Alþingis afstöðu íslenskra stjórnvalda um að virða beri alþjóðlega viðurkennd landamæri Georgíu og harmaði átökin, einkum mannfall almennra borgara. Þá kom forseti Alþingis á framfæri athugasemdum við aukið yfirflug rússneskra flugvéla á íslensku flugumsjónarsvæði. Heimsækir íslensk fyrirtæki Á morgun halda forseti Alþingis og íslenska sendinefndin til St. Pétursborgar og munu þar eiga fundi með fulltrúum héraðsþings St. Pétursborgar og heimsækja íslensk fyrirtæki á svæðinu. Opinberri heimsókn forseta Alþingis í Rússlandi lýkur nk. mánudag.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira