Innlent

Ríkisstjórnin tryggi að landeigendur geti varið sig

MYND/Stöð 2

Landssamband landeigenda sendi Geir H. Haarde forsætisráðherra bréf í síðustu viku þar sem farið er fram á það að hann beiti sér fyrir því að landeigendur geti varið sig í þjóðlendumálum.

Í bréfinu er bent á að frá því að þjóðlendulög voru sett fyrir tíu árum og óbyggðanefnd tók til starfa hafi stór hluti þjóðlendumála farið fyrir dómstóla, alls 36 talsins og hafi sex verið skotið til Mannréttindadómstóls Evrópu.

„Segja má að enn ríki veruleg óvissa um eignarréttarlega stöðu afrétta en jarðir með þinglýstum landamerkjum hafa almennt verið viðurkenndar eignarlönd, með undantekningum þó. Öræfi, jöklar og önnur óþinglýst lönd eru yfirleitt úrskurðuð þjóðlenda," segir enn fremur í bréfinu.

Þar er enn fremur bent á að málareksturinn sé dýr því landeigendur þurfi að verja bæði tíma og fjármunum til að verjast ásælni ríkisins í jarðir. Þrátt fyrir hástemmd loforð um að bændur og aðrir landeigendur skuli vera skaðlausir fjárhagslega af málssókn ríkisins sé það ekki svo. Málskostnaður til lögmanna landeigenda sé úrskurðaður svo lágur að landeigendur verði sjálfir að leggja út í verulegan kostnað.

„Í lýðræðisríki eru það talin mannréttindi að eiga rétt á óháðri vörn sjálfstæðra lögmanna sé að einstaklingum vegið af hálfu ríkisins. Það er alvarlegt mál ef færustu og reyndustu lögmenn á sviði eignarréttar hérlendis fást ekki lengur til að taka að sér þjóðlendumál fyrir landeigendur vegna þess að málskostnaður fæst ekki bættur að fullu af hálfu ríkisins. Fjöldi landeigenda hefur ekki handbæra fjármuni til að greiða þennan kostnað úr eigin vasa og hefur enda ekki stofnað til slíkra útgjalda. Margir neyðast því til að láta kyrrt liggja í stað þess að verja eigur sínar með tiltækum ráðum. Þetta er staða mála að óbreyttu," segja Landssamtökin og fara þess á leit við forsætisráðherra að hann breyti þessu.

Í tilkynninugu Landssamtakanna segir einnig að þau hafi ekki enn fengið viðbrögð frá ríkisstjórninni við erindi sínu.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×