Sakar formann og þingflokksformann um einkavinavæðingu 19. september 2008 12:35
Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, sakar formann og þingflokksformann flokksins um einkavinavæðingu. Hann segir þingflokksformanninn ekki starfi sínu vaxinn og er til í að taka við embættinu af honum. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði á Vísi í gær að menn innan miðstjórnar flokksins legðu Kristinn H. Gunnarsson þingflokksformann flokksins í einelti. Jón Magnússon segir að hann hafi ekki lagt Kristinn í einelti og segir að formaður flokksins verði að finna orðum sínum stað. „Hins vegar vil ég benda á það að þann 23. maí síðastliðinn þá fór fram umræða um einmitt vinnubrögð og verklag Kristins H. Gunnarssonar og þá voru greidd atkvæði og hann fékk raunverulega á sig vantraust," segir Jón. Þrettán hafi greitt atkvæði gegn Kristni en þrír honum í vil að honum sjálfum meðtöldum. Jón segir að meðal þeirra sem greitt hafi atkvæði gegn Kristni hafi verið Guðjón Arnar Kristjánsson. Jón segir að hann sé ekki sáttur við störf Kristins því hann hafi ekki boðað þingflokksfundi í allt sumar þegar þingflokkurinn hefði átt að vera að vinna í sambandi við þau alvarlegu mál sem væru að gerast í þjóðfélaginu. Hann segist tilbúinn að taka við starfi þingflokksformanns en sækist ekki sérstaklega eftir því. Þá talar Jón um einkavinavæðingu innan flokksins að hálfu formannsins og þingflokksformannsins. Hann segir að hæfasta fólkið sé ekki valið til starfa og segir að framkvæmdastjóri flokksins sé vinur og stuðningsmaður formannsins. Núverandi framkvæmdastjóri, Magnús Reynir Guðmundsson, er Ísfirðingur eins og formaður flokksins en Jón og margir aðrir studdu Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi þingmann, í starfið. Spurður segir Jón að flokksmenn verði að dæma hvort Magnús Reynir hafi staðið sig vel í starfi, en hann sé tvímælalaust hluti af einkavinavæðingunni.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira