Innlent

Þungt hljóð í flugfreyjum

MYND/Valli

Um þriðjungi flugfreyja hjá Icelandair var sagt upp í morgun eftir því sem Sigrún Jónsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, segir.

Alls var 138 flugfreyjum sagt upp í sparnaðaraðgerðum félagsins en að sögn Sigrúnar voru um 400 flugfreyjur fastráðnar fyrir uppsagnirnar. Spurð um hljóði í flugfreyjum segir Sigrún það mjög þungt.

Aðspurð um atvinnumöguleika flugfreyjanna treystir Sigrún sér ekki að leggja mat á þá. Hún segir að boðaður hafi verið félagsfundur á mánudag hjá Flugfreyjufélaginu þar sem farið verði yfir stöðuna með félagsmönnum í kjölfar uppsagnanna. Hún bendir á að flugfélagið hafi boðist til að aðstoða þá sem sagt hafi verið upp, meðal annars við gerð ferilskráa og annars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×