Fangar fá frið frá forvitnum í Kópavogi 1. september 2008 12:21 Fangarnir á Kópavogsbraut geta nú dvalið í garðinum í friði fyrir augngotum vegfarenda.
Vegfarendendur á Kópavogsbraut hafa tekið eftir því að girðingin umhverfis fangelsið sem staðsett er í götunni hefur verið klædd með striga. Guðmundur Gíslason, forstöðumaður fangelsana á höfuðborgarsvæðinu segir að fangarnir hafi farið fram á að þetta yrði gert til þess að koma í veg fyrir að forvitin augu gætu horft á þá þegar þeir eru í garðinum. „Byggðin hefur verið að færast sífellt nær fangelsinu og við höfum verið með létta girðingu umhverfis fangelsis sem sést í gegnum," segir Guðmundur. Hann segir að fangarnir hafi farið að kvarta yfir því að vegfarendur væru að gjóa augunum inn fangelsisgarðinn í sumar en þá voru menn mikið í garðinum þar sem veðrið var með eindæmum gott. „Við leituðum því leiða til að byrgja fólki sín og ákváðum að klæða girðinguna svona. Þetta er kannski ekki það fallegasta í bænum en þetta er ákveðin tilraun." Aðspurður hvort standi til að breyta girðingunni til frambúðar þannig að ekki sjáist í gegnum hana segir Guðmundur svo ekki vera. „Fangelsið er ekki þarna til frambúðar þótt ekki hafi verið ákveðið hvenær því verður lokað," segir Guðmundur og bendir á að á skipulagi bæjarins sé hverfið allt skipulagt undir íbúðabyggð. Fangelsið, sem í daglegu tali er kallað Kvennafangelsið, var stofnað árið 1989. Þrátt fyrir nafngiftina dvelja í fangelsinu karlar jafnt sem konur.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Sjá meira