Raddir fyrir Tíbet ekki þagnaðar Atli Steinn Guðmundsson skrifar 8. september 2008 11:09 Páll Óskar var meðal þeirra sem fram komu á styrktartónleikunum Raddir fyrir Tíbet. MYND/Birgitta Jónsdóttir
Nokkur vonbrigði urðu með aðsókn á samkomuna Raddir fyrir Tíbet sem samtökin Vinir Tíbets stóðu fyrir 24. ágúst, síðasta dag Ólympíuleikanna í Peking. Birgitta Jónsdóttir, formaður samtakanna, lætur þó ekki deigan síga og hyggst halda söfnuninni opinni til 15. september en tilgangur Radda fyrir Tíbet, sem var tónlistarviðburður í Salnum í Kópavogi, var að safna fé fyrir flóttamannamiðstöðina í Dharamsala á Indlandi. Meðal þeirra sem komu fram á samkomunni var Páll Óskar Hjálmtýsson sem gaf vinnu sínu auk þess að gefa fé í söfnunina. „Ástandið í Tíbet hefur aldrei verið eins slæmt og núna," útskýrir Birgitta. Hún hefur það eftir einni frægustu skáldkonu Tíbets, sem nýverið flúði frá landinu eftir handtöku og aðrar þrengingar, að ótti almennings hafi aldrei verið jafnlamandi sem nú. „Það er kerfisbundið verið að brjóta niður menningu Tíbeta, það liggur við að á hverjum degi glatist eitthvað," bætir Birgitta við og segir frá hetjulegum flótta Tíbeta frá landinu um hrjóstrugt fjalllendi í nístingskulda. Ekki komast allir lifandi úr þeirri svaðilför en fjöldi tíbetskra flóttamanna hefur nú fundið athvarf í Dharamsala á Indlandi en örnefnið þýðir reyndar bókstaflega hvíldarstaður. Svo margir brottflúnir Tíbetar eru saman komnir í Dharamsala að staðurinn er stundum nefndur Litla-Lhasa en Lhasa er höfuðborg Tíbets. Sem fyrr segir stendur söfnunin fyrir flóttamannamiðstöðina í Dharamsala til 15. september og er reikningsnúmerið eftirfarandi: 0137-05-066046, kennitala 121072-2979.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Sjá meira