Innlent

Landaði um hálfu tonni af humri fram hjá vigt

Skipstjóri sem landaði í Vestmannaeyjum nýverið hefur viðurkennt að hafa landað um hálfu tonni af humri fram hjá vigt.

Fram kemur í dagbók lögreglunnar í Eyjum að á föstudaginn var hafi starfsmenn Fiskistofu haft samband við og óskaði eftir aðstoð vegna gruns um að verið væri að landa afla framhjá vigt.

Við rannsókn lögreglu kom í ljós að í einu kari voru um 250 kíló af humri en ofan á humarinn hafði verið settur skötuselur. Við nánari leit í veiðafærahúsi útgerðarinnar fundust um 250 til 300 kíló af humri sem landað hafði verið framhjá vigt.

Skipstjóri bátsins viðurkenndi brot sitt og mun mál hans fara hefðbundna leið í réttarkerfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×