Virkjanir í Þjórsá komnar á beinu brautina Kristján Már Unnarsson skrifar 24. júní 2008 12:11
Hreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti einróma í gærkvöldi að setja Hvamms og Holtavirkjun inn á aðalskipulag með þeim rökum að þetta væri sá virkjunarkostur sem hefði hvað minnst umhverfsáhrif virkjana á Íslandi. Þar með eru tvær af þremur umdeildum Þjórsárvirkjunum komnar á beinu brautina fyrir Landsvirkjun. Í samþykkt Skeiða- og Gnúpverjahrepps um Hvamms og Holtavirkjun er vísað til niðurstöðu verkefnisstjórnunar Rammaáætlunar og niðurstöðu umhverfismats þess efnis að þessi virkjunarkostur hafi hvað minnst umhverfsáhrif virkjana á Íslandi. Engin staður með hátt minjagildi raskist og engar náttúruminjar á náttúruminjaskrá muni glatast vegna framkvæmdanna. Þá hafi virkjanirnar ekki afgerandi áhrif á afkomu laxfiska í Þjórsá. Er það mat sveitarstjórnar að skili mótvægisaðgerðir þeim árangri sem gert sé ráð fyrir verði helstu umhverfisáhrif virkjananna sjónræn, þ.e. breytt ásýnd svæðisins vegna lóna, stíflugarða og minnkaðs rennslis árinnar um hluta virkjanasvæðisins. Hyggst sveitarstjórnin tryggja að við frekari hönnun framkvæmdanna verði dregið úr sjónrænum áhrifum þeirra, eins og frekast er unnt. Með þessari samþykkt má segja að helstu hindrun í vegi þess að Landsvirkjun geti ráðist í tvær af þremur umdeildum virkjunum í neðri Þjórsá, hafi verið rutt úr vegi. Þótt umhverfisráðherra eigi eftir að staðfesta aðalskipulagið hefur ráðherrann í raun ekki vald til að leggjast gegn samþykkt sveitarstjórnar hafi hún verið gerð í samræmi við lög, og þótt iðnaðarráðherra þurfi einnig að veita virkjunarleyfi er sú afgreiðsla talin nánast formsatriði á þessu stigi málsins. Landsvirkjun á þá aðeins eftir að fá samþykki Flóahrepps fyrir Urriðafossvirkjun til að tryggja sér allar virkjanirnar þrjár.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira