Innlent

Tveir í fimm mánaða fangelsi fyrir fjölmörg brot

MYND/Ingólfur

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fimm mánaða fangelsi fyrir ýmis brot, þar á meðal fíkniefnabrot, umferðarlagabrot, þjófnað og hylmingu.

Alls var ákæra á hendur mönnunum í átta liðum og sneri meðal annars að vörlsu fíkniefna og þýfis af ýmsu tagi, þar á meðal tölva, ljósmyndavéla og stjörnusjónauka. Annnar mannanna var einnig ákærður fyrir fíkniefnaakstur og var hann sviptur ökuleyfi í sex mánuði vegna þess.

Báðir játuðu þeir brot sín greiðlega og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar en einnig þess að þeir höfðu áður komist í kast við lögin.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×