Innlent

Fær ekki bætur vegna orðaskaks í nágrannadeilum

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag karlmann af kröfu annars manns sem sakaði hann um ærumeiðingar eftir rifrildi. Mennirnir tveir bjuggu í sama húsi og höfðu átt í deilum, meðal annars vegna reykinga í og við húsið.

Eitt skipti í fyrra mættust þeir og þegar sá sem stefnt var svaraði ekki kveðju þess sem stefndi kallaði hann hinn fyrrnefnda dóna. Sá sakaði hins vegar stefnandann í málinu um að hafa þrisvar gægst á gluggann hjá sér og sambýiskonu sinni.

Þessar ásakanir sætti maðurinn sig ekki við og vildi að þær yrðu dæmdar dauðar og ómerkar. Þá fór hann fram á að nágrannin sætti fangelsi í minnst 30 daga vegna orðanna og að hann greiddi sér hálfa milljón í miskabætur. Enn fremur fór sá sem stefndi í málinu fram á að nágranninn greiddi 110 þúsund krónur til þess að sá fyrrnefndi gæti afritað dómsorð í 100 eintökum til að dreifa til þeirra sem ætla mætti að sá síðarnefndi hefði sagt frá gluggagægjunum.

Dómurinn komst hins vegar að því að stefnandinn í málinu hefði átt upptök að orðaskaki mannanna með því að kalla stefnda dóna og vanda um við hann vegna þess að hann hefði ekki tekið undir kveðju stefnanda. Engan veginn væri hægt að fallast á það að að stefndi hefði gerst sekur um lögbrot.

Var stefnanda því gert að greiða stefnda 290 þúsund krónur í málskostnað.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×