Rekstrarsinnaðir yfirmenn hafa hagnast á hlutafélagavæðingu RÚV 2. júlí 2008 10:56 Mörður Árnason
Mörður Árnason fyrrum þingmaður Samfylkingar og hollvinur Ríkisútvarpsins skrifar athyglisverðann leiðara á heimasíðu flokksins í gær. Þar fjallar hann um uppsasgnirnar á Rúv og veltir fyrir sér hvort þar sé á ferðinni brigð á fyrirheitum eða framúrkeyrsla í stofnuninni. Mörður var einn þeirra þingmanna sem greiddi atkvæði gegn umdeildum lögum þegar Rúv var breytt í opinbert hlutafélag. „Hinsvegar er ljóst að fyrir liggja yfirlýsingar stjórnvalda um fullan stuðning við Ríkisútvarpið eftir að samþykktar voru umdeild lög um breytingu þess í opinbert hlutafélag. Þessi stjórnvöld hljóta ásamt yfirmönnum Ríkisútvarpsins - sem voru mjög áfram um breytingarnar og hafa sumir hagnast verulega á þeim í launum - að skýra út fyrir almenningi hvort heldur hér eru á ferð brigð á fyrirheitum eða frammúrkeyrsla í stofnuninni. Eða er ástæðan ósætti um markmið og leiðir?," skrifar Mörður í leiðara sínum. Hann segir galla við þessa rekstrarleið vera legíó. Einn er sá að Ríkisútvarpið vanrækir skyldur sínar sem almannaútvarp „vegna þess að rekstrarsinnaðir yfirmenn sjá sér lítinn hag í slíkri dagskrá," skrifar Mörður. Mörður telur einnig að markaðsstöðvarnar líti á RÚV sem keppinaut sem njóti óeðlilegs forskots með afnotagjaldinu sem á að koma á næsta ári. Hann segir einnig að þegar áskriftarféð er of lítið reyni fyrirtækið að sækja sér meira fé með auglýsingum og kostun. „Dagskráin mótast af þeirri markaðssókn, sem svo hefur auðvitað í för enn meiri árekstra við hinar stöðvarnar." Og Mörður segir uppsagnirnar á RÚV dapurlegar.„Nú er þessi leið ein saman ekki fær því ljóst er að auglýsinga- og kostunarmarkaður dregst saman á næstunni, og því er boðað til uppsagna í Efstaleitinu. Það eru dapurleg tíðindi fyrir áhugamenn um Ríkisútvarpið og um fjölmiðlun á Íslandi. Dapurlegust hljóta þau þó að vera fyrir hina vígreifu baráttumenn opinbera hlutafélagsins. Eða hvað?" Hægt er að sjá leiðara Marðar í heild sinni hér.
Mest lesið Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira