Ritstjórar DV: Árni brýtur lög 5. júní 2008 13:21 Feðgarnir á DV.
Ritstjórar DV, feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson, hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna forsíðufréttar blaðsins um Árni Mathiesen í dag. Árni segir fréttina ranga og vill afsökunarbeiðni frá DV. Helgi Bernódusson skrifstofustjóri Alþingi sagði einnig við Vísi í dag að fréttin væri röng. Yfirlýsing ritstjóra DV er birt hér í heild sinni en þar fyrir þeðan er hægt að lesa sér nánar til um málið. "Árni Mathiesen fjármálaráðherra brýtur lög með því að skrá falskt lögheimili á Kirkjuhvoli í Þykkvabæ. Ráðherrann býr ekki á því lögheimili sem hann hefur gefið upp, þar búa pólskir verkamenn. Ráðherrann býr í Hafnarfirði en nýtur hlunninda úr ríkissjóði sem ætluð eru til að greiða kostnað af húsnæði, dvöl og uppihaldi í því kjördæmi sem hann er kosinn á þing fyrir. Ranghermt er í yfirlýsingu Árna Mathiesen vegna þessa máls að hann njóti ekki styrkja vegna þessa. Hann segist aðeins fá greiðslur vegna ferðalaga og uppihalds. Þetta er rangt eins og má lesa í fyrstu málsgrein 2. greinar laga um þingfararkostnað. Í þeirri grein er fjallað um húsnæðis- og dvalarkostnað. Í þriðju grein laganna er fjallað um ferðakostnað en um það er ekki deilt. Árni hefur sagt rangt að hann græði á fölsun sinni varðandi lögheimilið í Þykkvabæ. DV fellst ekki á þá málsvörn hans og túlkun. Árni greiðir lægra útsvar í Þykkvabæ en hann myndi gera ef skráning væri rétt og hann réttilega skráður í Hafnarfirði. Hvergi er því haldið fram í DV að hann brjóti lög með því að þiggja dreifbýlisstyrk en hann brýtur lög með rangri skráningu. Ráðherrann hefur ekki útskýrt af hverju hann greip til þess að falsa skráningu lögheimilis í Þykkvabæ. Þess er krafist að hann skýri ástæður þess að hann fer á svig við lög í landinu með umræddum hætti og hagnast á því. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur hann ekki látið DV ná í sig. DV hafnar því að biðja ráðherrann afsökunar en krefst þess að hann útskýri sitt mál. Ítarlega verður fjallað um mál ráðherrans í helgarblaði DV á morgun. "
Tengdar fréttir Árni Matt krefst þess að DV biðjist afsökunar Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra hefur krafið DV um afsökunarbeiðni vegna forsíðufréttar blaðsins í dag. Þar er Árni sagður græða "fölsku lögheimili". 5. júní 2008 12:15 Árni fær ekki greitt sérstaklega fyrir lögheimili á Kirkjuhvoli Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, segir að frétt sem birtist á forsíðu DV í dag sé efnislega röng. Þar er því haldið fram að Árni hafi fengið tæpa eina milljón króna í greiðslur fyrir að skrá lögheimili sitt á Kirkjuhvoli við Þykkvabæ. Í DV er sagt að Árni þiggi mánaðarlegar greiðslur fyrir að vera með það sem blaðið kallar „rangt lögheimili“, enda hafi Árni aldrei búið í húsinu. 5. júní 2008 10:18 Frétt DV um Árna hefði verið rétt fyrir 14 árum Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, sagði í samtali við Vísi að forsíðufrétt DV í dag um Árna Mathiesen væri röng. 5. júní 2008 12:31 Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Sjá meira
Árni Matt krefst þess að DV biðjist afsökunar Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra hefur krafið DV um afsökunarbeiðni vegna forsíðufréttar blaðsins í dag. Þar er Árni sagður græða "fölsku lögheimili". 5. júní 2008 12:15
Árni fær ekki greitt sérstaklega fyrir lögheimili á Kirkjuhvoli Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, segir að frétt sem birtist á forsíðu DV í dag sé efnislega röng. Þar er því haldið fram að Árni hafi fengið tæpa eina milljón króna í greiðslur fyrir að skrá lögheimili sitt á Kirkjuhvoli við Þykkvabæ. Í DV er sagt að Árni þiggi mánaðarlegar greiðslur fyrir að vera með það sem blaðið kallar „rangt lögheimili“, enda hafi Árni aldrei búið í húsinu. 5. júní 2008 10:18
Frétt DV um Árna hefði verið rétt fyrir 14 árum Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, sagði í samtali við Vísi að forsíðufrétt DV í dag um Árna Mathiesen væri röng. 5. júní 2008 12:31