Innlent

Tveir í haldi vegna bankaránsins í Hafnarfirði

Tveir menn eru nú í haldi lögreglu vegna rannsóknar á ráni í útibúi Landsbankans í Hafnarfirði á miðvikudagsmorgun.

Þeir voru handteknir í gær en engar játningar liggja fyrir og lögregla hefur ekki ákveðið hvort krafist verður gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þeim. Fleiri hafa verið yfirheyrðir, en sleppt að því loknu.

Ræninginn, sem ógnaði starfsfólki bankans með hnífi, komst undan með 250 þúsund krónur í reiðufé




Fleiri fréttir

Sjá meira


×