Leggur til sameiningu Vinnumálastofnunar og Vinnueftirlits 9. maí 2008 15:56 Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi.
Ríkisendurskoðun telur að endurskoða þurfi innra skipulag og stjórnun Vinnumálastofnunar, gera árangursstjórnunarsamning við hana og móta henni faglega stefnu. Þetta kemur fram stjórnsýsluúttekt Ríksendurskoðunar á stofnuninni. Þar segir einnig að einfalda þurfi stjórnsýslu þeirra sjóða sem stofnunin hefur umsýslu með og er í því samhengi lagt til að efnt verði til nýrrar stofnunar velferðarmála. Þá er hvatt til að kannað verði með formlegum hætti hvort rétt sé að sameina Vinnumálastofnun og Vinnueftirlit ríkisins í eina öfluga stofnun á sviði vinnumarkaðsmála. Enginn árangursstjórnunarsamningur Í tilkynningu bendir Ríkisendurskoðun á að breyta þurfi innri stjórnsýslu Vinnumálastofnunar svo að hún endurspegli þau verkefni sem hún sinnir og lagalegar áherslur. Þá valdi núverandi stjórnskipulag meðal annars því að ábyrgð sé ekki nægjanlega skýr og er lagt til að félags- og tryggingamálaráðuneytið meti hvort rétt sé að stofnunin hafi sérstaka stjórn. Einnig eru gerðar alvarlegar athugasemdir við að ráðuneytið hefur hvorki gert árangursstjórnunarsamning við Vinnumálastofnun né sett reglugerð um vinnumarkaðsaðgerðir eins og því ber. Brýnt sé að úr þessu verði bætt. Þá er saft nauðsynlegt að stofnuninni verði mótuð fagleg stefna eins og stjórn hennar hefði átt að eiga frumkvæði að. Sjóðir Vinnumálastofnunar verði fluttir til stofnunar velferðarmála Í úttekt Ríkisendurskoðunar kemur fram að núverandi stjórnsýsla þeirra sjóða sem Vinnumálastofnun hefur umsjón með er óþarflega flókin og að einföldun hennar gæti bætt þjónustu við bótaþega, aukið skilvirkni og lækkað umsýslukostnað. Lagt er til að stjórnir sjóðanna verði lagðar niður og að umsjón Vinnumálastofnunar með þeim verði flutt til nýrrar stofnunar velferðarmála sem sinni allri umsýslu lífeyris-, sjúkra-, slysa- og vinnumarkaðstengdra trygginga og bóta. Þessar hugmyndir eru áþekkar hugmyndum sem Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra viðraði fyrr í vikunni um að sameina Vinnumálastofnun og Tryggingastofnun ríkisins í eina stofnun.„Ríkisendurskoðun telur að um leið og umsýsla ríkisins með tryggingum og bótum verði sameinuð eigi að sameina greiðslukerfi ríkisins í eitt og veita þangað upplýsingum úr fjölmörgum kerfum sem reikna og ákvarða bætur. Með því móti gefist einstaklingum kostur á einu samræmdu greiðsluyfirliti um bætur og aðrar greiðslur. Þetta muni því bæta þjónustu við þá," segir í tilkynningunni.Að endingu vill Ríkisendurskoðun að kannað verði að sameina Vinnumálastofnun og Vinnueftirlit ríkisins í eina öfluga stofnun á sviði vinnumarkaðsmála. „Hvort sem af slíku yrði eða ekki gæti að minnsta kosti verið hagkvæmt að sameina þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar og umdæmisskrifstofur Vinnueftirlitsins í eina þjónustuskrifstofu vinnumarkaðsmála á hverjum stað. Verði hins vegar af sameiningu stofnananna tveggja mætti samnýta samráðsvettvang málaflokkanna sem þær sinna: Vinnumarkaðsaðgerða og vinnuverndar," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira