Borgarstjóri með lygaþvælu skrifaða á ennið 9. maí 2008 14:45 Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins.
Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir Ólaf F. Magnússon borgarstjóra ekki þann heilindamann sem hann segist vera. Í harðorðri yfirlýsingu frá Óskari segir hann borgarstjóra með lygaþvælu og svik skrifað á enni. Tilefni yfirlýsingar óskar er önnur yfirlýsing sem Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, aðstoðarmaður borgarstjóra, sendi frá sér í morgun. Þar bað hún um vinnufrið í borginni og sagði að heiðarleika borgarstjóra skyldi ekki draga í efa, hvorki í ráðningarmáli miðborgarstjóra né öðrum málum. „Auðvelt er að setja sig í spor starfsmanna á skrifstofu borgarstjóra, sem ræður ekki við það verkefni sem Sjálfstæðisflokkurinn fól honum, þegar ákall um miskunn berst frá aðstoðarmanninum. Slíkt undur hefur aldrei gerst í íslenskum stjórnmálum og verður enn einkennilegra þegar horft er til þess að umræðan um ráðningu framkvæmdastjóra miðborgarinnar hafði aðeins staðið í tvo daga þegar neyðarkallið barst," segir Óskar. Segir borgarstjóra hafa logið tvisvar að minnihlutaflokkum Þá segir einnig sérstakt að fullyrt sé að heiðarleiki borgarstjórans verði ekki dreginn í efa. „Að því tilefni er rétt að rifja upp að Ólafur F Magnússon hefur sennilega sýnt af sér mestu óheilindi sem nokkur stjórnmálamaður hefur gert svo mér reki minni til. Á kosninganótt vorið 2006 tók hann upp viðræður við Framsóknarflokk, Samfylkingu og VG um myndun meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Í þeim viðræðum óskaði hann eftir því að taka hádegismat og úr því matarhléi kom hann ekki aftur. Hann endurtók síðan leikinn þegar hann myndaði meirihlutann við Sjálfstæðisflokkinn í janúa s.l. og laug að samherjum sínum allt fram að því að hann birtist í fjölmiðlum með málefnasamning við Sjálfstæðisflokkinn uppá vasann. Að tala um heiðarleika og heilindi með lygaþvæluna og svikin frá sjálfum sér skrifað á ennið er móðgun við alla þá sem ennþá fylgjast með þessum farsa," segir Óskar.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Fleiri fréttir Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sjá meira