Tveggja mánaða skilorð fyrir líkamsárás 25. janúar 2008 10:56
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag pilt í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Í október í fyrra sló pilturinn annan mann hnefahöggi í andlitið með krepptum hnefa þannig að hann rotaðist og skall í jörðina og kýldi hann síðan tveimur höggum þar sem hann lá meðvitundarlaus í jörðinni. Árásarþolinn hlaut brot á andlitsbeinum, heilahristing, bólgu og yfirborðsáverka í andliti og brotna tönn. Ákærði viðurkenndi fyrir lögreglu og fyrir dómara að hafa slegið manninn en kvaðst hafa gert það í neyðarvörn þar sem maðurinn hefði veist að sér að fyrra bragði, tekið sig hálstaki aftan frá, lagt sig í jörðina og sett hnéð í andlit sitt. Kvaðst ákærði fyrir dómi að sér hefði fundist sér ógnað með þessari aðför og því brugðist við eins og hann gerði. Kvaðst hann ekki hafa gert sér grein fyrir því hvort maðurinn hreyfði sig eftir að hann féll í jörðina og áður en seinni höggin voru veitt. Framburður vitnis staðfesti þessa frásögn ákærða. Ákærði krafðist sýknu á grundvelli þess að atlagan að honum sjálfum hafði verið mjög hættuleg og ákærði orðið hræddur. Dómurinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að ákærði hafi farið langt út fyrir mörk leyfilegrar neyðarvarnar og krafa um sýknu ekki tekin til greina af þeim sökum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að árásarþolinn veittist að ákærða í upphafi.
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Betur fór en á horfðist á Mývatni: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Fleiri fréttir Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist á Mývatni: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Sjá meira