Sami þorskkvóti í ár og í fyrra 1. júlí 2008 16:22
Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur heimilað veiðar á 130 þúsund tonnum af þorski á næsta fiskveiðiári sem hefst þann 1. september. Er það sama magn og í fyrra en þá var kvótinn skorinn niður um 60 þúsund tonn.Á vef sjávarútvegsráðuneytisins kemur fram að Hafrannsóknarstofnun hafi lagt til 124 þúsund tonna kvóta af þorski en sjávarútvegsráðherra heimilar 130 þúsund tonn.Hvað aðrar tegundir áhrærir eru breytingar ekki miklar. Aflamark í ýsu og ufsa lækkar, ýsu úr 100 þúsund tonnum í 93 þúsund tonn og ufsa úr 75 þúsund tonnum í 65. Þá er aflamark lækkað í karfa um 7 þúsund tonn, úr 57 þúsund í 50 þúsund. Um lítils háttar aukningu er að ræða í aflamarki steinbíts, humars og skötusels, en aflamark allmargra tegunda breytist ekki á milli ára. Síldveiðikvótinn verður 150 þúsund tonn eins og í fyrra en Hafrannsóknarstofnun hafði lagt til 131 þúsund tonna afla.„Framhjá því verður ekki litið að hinar litlu aflaheimildir í þorski munu hafa meiri áhrif á næsta fiskveiðiári en á því yfirstandandi. Þessu veldur meðal annars að geymsla aflamarks í þorski frá síðasta fiskveiðiári kom mönnum til góða á núverandi fiskveiðiári. Því verður ekki að heilsa á næsta fiskveiðiári. Geymslurétturinn eykur aðlögunarhæfni í sjávarútvegi og hagkvæmni í veiðunum, ekki síst við núverandi aðstæður. Þess vegna er að því stefnt að leggja fram frumvarp á komandi hausti sem eykur möguleika á geymslu veiðiheimilda á milli ára," segir í tilkynningu sjávarútvegsráðuneytisins.
Mest lesið Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Innlent Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Erlent Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Erlent Fleiri fréttir Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Sjá meira