Tilmæli ríkisstjórnar um frystingu lána ítrekuð 22. október 2008 15:53 Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra.
Fréttir hafa borist af því að viðskiptavinum bankanna hafi gengið illa að fá frystingu á erlendum lánum, þrátt fyrir tilmæli viðskiptaráðherra þar um. Viðskiptaráðuneytið hefur því í dag rætt við alla bankastjóra hinna nýju ríkisbanka til þess að tryggja að þjónusta þeirra sé í samræmi við tilmæli ríkisstjórnarinnar. Þá er þess vænst að önnur fjármálafyrirtæki veiti sömu fyrirgreiðslu. Hér á eftir fer tilkynning ráðuneytisins í heild sinni: Í ljósi frétta af frystingu erlendra lána vill ríkisstjórnin taka fram eftirfarandi: Viðskiptaráðuneytið hefur í dag rætt við alla bankastjóra hinna nýju ríkisbanka til að tryggja að þjónusta við viðskiptavini bankanna sé í samræmi við tilmæli ríkisstjórnarinnar um frystingu myntkörfulána. Ríkisstjórnin hefur beint þeim tilmælum til hinna nýju ríkisbanka að þeir frysti afborganir og vexti af myntkörfulánum tímabundið, sé þess óskað, þar til eðlileg virkni kemst á gjaldeyrismarkaðinn. Ennfremur að ekki verði sérstakrar greiðslu krafist af viðskiptavinum vegna þessa. Mælst er til að bankarnir krefji viðskiptavini ekki um frekari tryggingar né láti nýtt greiðslumat fara fram vegna tímabundinnar frystingar á myntkörfulánum. Í ljósi framangreinds er athygli viðskiptavina nýju bankanna vakin á því að þeir geti óskað eftir frystingu á myntkörfulánum, óháð efnahag sínum. Í tilmælunum var því einnig beint til ríkisbankanna að þeir bjóði viðskiptavinum sínum í greiðsluerfiðleikum upp á sams konar úrræði og Íbúðalánasjóður hefur gert, sbr. ils.is. Þess er vænst að önnur fjármálafyrirtæki veiti sömu fyrirgreiðslu. Bent skal á að fjármálaráðherra mun á næstu dögum leggja fram á Alþingi frumvarp til breytingar á lögum um stimpilgjöld, þar sem lagt er til að skjöl sem gefin eru út á tímabilinu frá gildistöku laganna til 1. janúar 2009 og fela í sér breytingar á skilmálum á fasteignaveðskuldabréfum einstaklinga verði undanþegin greiðslu stimpilgjalda.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira