Síld fyrir tólf milljarða við Stykkishólm 22. október 2008 18:29
Síldarævintýrið á Breiðafirði gæti á næstu vikum skilað tólf milljarða króna útflutningsverðmæti í þjóðarbúið. Stjórnvöld eru hvött til þess að auka síldarkvótann.Síldveiðiskipin mokuðu upp silfri hafsins við Stykkishólm í gær og bendir flest til þess að sagan frá því í fyrra endurtaki sig en þá var meginhluti kvótans veiddur við innanverðan Breiðafjörð, einkum á Grundarfirði. Þessa óvæntu veiði á ókunnum síldarslóðum skýrir Jakob Jakobsson fiskifræðingur með því að íslenska sumargotssíldin velji sér breytilegar vetrarstöðvar, gjarnan kaldan og lygnan sjó. Þar syndi hún lítið og spari orku fram á vor. Frægt sé fyrir sextíu árum þegar síldin hafði vetrarstöðvar í Hvalfirði, á níunda áratugnum var hún inni á Austfjörðum og nú finni hún hentugar aðstæður við Breiðafjörð. Síldin þaðan verður væntanlega unnin í Vestmannaeyjum, Hornafirði, Fáskrúðsfirði, Neskaupsstað og á Vopnafirði og þar breytt í matvæli fyrir íbúa í Austur-Evrópu. Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar býst við að nær allur kvótinn, 150 þúsund tonn, veiðist á Breiðafirði á næstu vikum, og áætlar hann að útflutningsverðmætið geti orðið tólf milljarðar króna. Hann hvetur til þess að kvótinn verði aukinn og telur óhætt að veiða 30 til 50 þúsund tonn til viðbótar. Sjómennirnir finna til sín við gjaldeyrisöflunina og segir Þorkell Pétursson, stýrimaður á Bjarna Ólafssyni AK, að nú sé greinin ekki lengur númer tvö, - heldur númer eitt.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira