86% styðja Ólaf Ragnar sem forseta 1. febrúar 2008 20:30 Ólafur Ragnar Grímsson nýtur mikils stuðnings.
80% svarenda í könnun Gallups sögðust vera ánægðir með ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar um að gefa kost á sér til endurkjörs til forseta Íslands. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi sem birtur er á vef RÚV. Niðurstöðurnar nú eru svipaðar og þær voru þegar sömu spurningar var spurt í Þjóðarpúlsinum í mars árið 2000. Einungis 6% eru óánægð með ákvörðunina. Ennfremur eru 87% þjóðarinnar ánægð með störf Ólafs Ragnars sem forseta. Þegar fólk var spurt hvort það styddi Ólaf Ragnar sem forseta, sögðust 86% gera það, 10% vilja fá einhvern annan í embættið og 5% er alveg sama hver sinnir embættinu. Spurt var hvort þau skilyrði sem menn þurfi að uppfylla til að geta boðið sig fram til embættis forseta Íslands væru of ströng eða of væg og fannst 57% landsmanna þau vera of væg, en aðeins 2% að þau væru of ströng. Þá var spurt hvort ætti að takmarka þann tíma sem einstaklingur getur gegnt embætti forseta Íslands og voru 42% þeirrar skoðunar. Þeir einstaklingar sem játuðu því voru þá spurðir hversu mörg ár einstaklingur ætti að geta gegnt embætti forseta Íslands. Tæplega helmingi þeirra fannst 10-12 ár vera hæfilegur hámarkstími í embætti, en álíka mörgum fannst 8 ár eða skemmri tími og 15 ár eða lengri tími hæfilegur. Yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar er andvígur því að leggja niður embætti forseta Íslands, eða 89%, en 7% eru því hlynnt. Könnun á afstöðu til forseta Íslands var gerð dagana 10. - 22. janúar. Í úrtaki voru 1257 landsmenn en svarhlutfall var 61%.
Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Fleiri fréttir Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Sjá meira