SGS kallar eftir skilvirkari mótvægisaðgerðum vegna kvótaskerðingar 1. febrúar 2008 15:03 Kristján Gunnarsson er formaður Starfsgreinasambandsins.
Forysta Starfsgreinasambands Íslands kallaði eftir skilvirkari mótvægisaðgerðum vegna kvótaniðurskurðar á fundi sínum með forsætisráðherra, utanríkisráðherra og sjávarútvegsráðherra í dag um málefni fiskvinnslufólks. Fram kemur á vef Starfsgreinasambandsins að forsvarsmenn þess hefðu áður lýst verulegum áhyggjum af þeirri þróun sem er að verða í íslenskum sjávarútvegi. Á fundi með ráðamönnum voru ræddar fjöldauppsagnir í sjávarútvegi og það sem Starfsgreinasambandið kallar getuleysi kvótakerfisins til að tryggja öflugt atvinnulíf í sjávarútvegi og fiskvinnslu. Benti Starfsgreinasambandið á að frá því að þorskkvóti hefði verið skorinn niður um þriðjung á síðasta ári hefðu 456 einstaklingar fengið uppsagnarbréf í fiskvinnslu og 102 stæðu frammi fyrir tímabundnum lokunum í allt að 5 mánuði. „Niðurskurður á þorskkvóta virðist einnig notaður til ótímabærra uppsagna og án mótvægisaðgerða. Ferskasta dæmið er HB Grandi á Akranesi, sem hvorki virðir lög um hópuppsagnir né sjónarmið um samfélagslega ábyrgð í athöfnum sínum," segir á vef Starfsgreinasambandsins. Þar er einnig bent á að starfsfólki í fiskvinnslu hafi fækkað um þriðjung á árabilinu 1997-2006 og gera megi ráð fyrir að um þúsund störf glatist í fiskvinnslu á þessu ári ef fram heldur sem horfir. Reglur um samfélagslega ábyrgð Starfsgreinasambandið setti fram ýmsar væntingar á fundinum með stjórnvöldum, meðal annars að setja þyrfti reglur um samfélagsleg skilyrði og ábyrgð kvótahafa meðan kerfið er ekki aflagt til að koma í veg fyrir fyrirvaralausar hópuppsagnir án mótvægisaðgerða og án samráðs við viðkomandi sveitafélög, Vinnumálastofnun og stéttarfélög starfsfólks. Þá þyrftu mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar að taka mið af þörfum fiskvinnslufólks en ekki aðeins þeirra byggðarlaga þar sem kvótinn er skráður þá og þá stundina óháð vinnslunni. Efla þyrfti starfsfærni fiskvinnslufólks til annarra starfa með endurmenntun og fullorðinsfræðslu og þá þyrfti að gera það fýsilegra eða gera það að kvöð að vinna sem mestan afla innanlands. Þá þyrfti að styrkja nýsköpun í sjávarútvegi og vinnslu sjávarafurða til að auka verðmæti þess afla sem enn er veiddur hér við land. „Skilvirkar mótvægisaðgerðir, þar sem tillit er tekið til ofangreindra atriða gætu skilað betri sjávarútvegs- og vinnslufyrirtækjum en við búum við í dag, þar sem samfélagsleg ábyrgð og samfélagslegir hagsmunir eru í fyrirrúmi öflugs atvinnulífis í fiskveiðum og fiskvinnslu, þar sem framleiðsla verðmætrar gæðavöru tryggir arðbær, örugg og vel launuð störf til langs tíma," segir á vef Starfsgreinasambandsins. Starfsgreinasambandið segir ríkisstjórnina hafa tekið hugmyndirnar til skoðunar og þakkað umræðuna.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Sjá meira