Greinir á um hvort þvingunarúrræði séu í lögum 1. febrúar 2008 12:15
Reykingar voru leyfðar áfram á nokkrum veitingastöðum í miðbænum í gærkvöld án afskipta lögreglu. Umhverfissvið Reykjvíkurborgar telur ekki mögulegt að beita viðurlögum við því að reykingabannið sé hundsað. Kráareigendur leyfðu reykingar á nokkrum veitingastöðum miðbæjarins í fyrrakvöld og í gærkvöld í mótmælaskyni vegna óánægju með löggjöfina um reykingabannið. Hvorki lögregla né umhverfissvið Reykjavíkurborgar hefur haft afskipti af reykingum veitingahúsagesta. Kráareigendur vilja setja upp aðstöðu fyrir reykingamenn, úti eða inni á veitingastöðunum, og segja engin refsiákvæði við því að rjúfa reykingabannið. Svo virðist sem þeir hafi á réttu að standa því umhverfissvið borgarinnar tekur í sama streng. Þegar lög á veitingahúsum sem heilbrigðisnefndir hafa eftirlit með eru brotin er vísað til laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Heilbrigðisnefndir geta veitt stöðum áminningu og tilhlýðilegan frest til úrbóta. Hundsi forsvarsmenn veitingastaða áminningar getur heilbrigðisnefnd stöðvað eða takmarkað starfsemi staða. Lögfræðingur umhverfissviðs Reykjavíkurborgar, Örn Sigurðsson, telur að það þurfi að vera bein tilvísun í lögum um reykingabann svo hægt sé að beita slíkum þvingunarúrræðum. Lögfræðingur heilbrigðisráðuneytisins sagði í viðtali hjá Stöð 2 í gær að lögin um reykingabannið væru skýr og hægt væri að beita þvingunarúrræðum sem getið er um í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hefur óskað eftir frekari leiðbeiningum frá heilbrigðisráðuneytinu um málið.
Mest lesið Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Innlent Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Innlent Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Innlent Fleiri fréttir Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Sjá meira