Innlent

Fingralangir á ferli á Suðurlandi

Nokkur þjófnaðarmál komu til kasta lögreglunnar á Selfossi í liðinni viku. Þannig var tilkynnt um innbrot í íbúð að Reykjabraut á Laugarvatni á föstudag. Þaðan var stolið skartgripum og áfengi. Sá sem þarna var að verki hafði spennt upp hurð til að komast inn í íbúðina þar sem hann rótaði heilmkið til.

Talið er að innbrotið hafi átt sér stað á tímabilinu frá 18. til 21. október. ,,Upplýsingar hafa borist um að á þessu tímabili hafi sést til Land Rover Discoveri við húsið en þessi sama bifreið hafi sést í skurði við Eyvindatungu neðan við Laugarvatn. Ef einhver kannast við að hafa veitt aðstoð við að ná bifreiðinni upp úr skurðinum er hann beðinn um að hafa samband við lögreglu í síma 480 1010," segir í dagbókinni.

Þar kemur einnig fram að fimm ungmenni hafi verið handtekin í síðustu viku vegna rannsóknar á nokkrum innbrotum sem átt hafa sér stað í sýslunni að undanförnu. Tveir viðurkenndu innbrot í söluskálann Árborg við Árnes. Þá gengust þeir við nokkrum innbrotum í Vestmannaeyjum frá því haust og hafa verið þar til rannsóknar.

Enn fremur kom fram að lögreglumenn hefðu komist á snoðir um að verið væri að mála bifhjól í bílskúr á Selfossi. Grunsemdir vöknuðu um að hjólið væri stolið. Í ljós kom að hjólinu hafði verið stolið í Reykjavík og þjófurinn fengið saklaust ungmenni á Selfossi til að geyma hjólið. Sá grunaði var handtekinn og yfirheyrður ásamt manni sem handtekinn var í Reykjavík og er talinn vera vitorðsmaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×