Námsmenn erlendis fái 500.000 króna neyðarlán 27. október 2008 13:58 Garðar Stefánsson formaður SÍNE.
Garðar Stefánsson formaður Sambands íslenskra námsmanna erlendis segir forsendur úthlutunarreglna LÍN fyrir veturinn 2008-2009 brostnar. Í bréfi sem sent hefur verið menntamála- og fjármálaráðherra kemur fram að íslenskir námsmenn erlendis séu í miklum kröggum þar sem lán þeirra og sjálfsafafé dugi ekki lengur fyrir skjólagjöldum og lágmarksframfræslu. Í bréfinu leggur Samband íslensrka námsmanna erlendis fram tillögur þar sem meðal annars kemur fram að námsmönnum erlendis verði veitt viðbótarlán upp á 500.000 krónur án tafar. Bréfið í heild sinni má sjá hér að neðan: Ágæti ráðherra menntamála Ágæti ráðherra fjármála Forsendur úthlutunarreglna Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) fyrir veturinn 2008-2009 eru brostnar. Íslenskir námsmenn erlendis eru í miklum kröggum þar sem lán þeirra og sjálfsaflafé duga ekki lengur fyrir skólagjöldum og lágmarksframfærslu. Hætta er á að fjöldi námsmanna erlendis muni af fjárhagsástæðum þurfa að hætta eða fresta námi ellegar berjast í bökkum til að eiga í sig og á í námslandinu. Samband íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) vill að Lánasjóður íslenskra námsmanna, í samráði við viðkomandi ráðuneyti, grípi til tafarlausra aðgerða til að koma íslenskum námsmönnum erlendis til bjargar. Lítur SÍNE svo á að skv. hljóðan laga um Lánasjóðinn sem samþykkt voru á Alþingi beri Lánasjóðnum skylda til að grípa til aðgerða enda fullnægir sjóðurinn engan veginn lögboðnu hlutverki sínu eins og aðstæður eru í dag. SÍNE leggur fram eftirfarandi tillögur: - Námsmönnum erlendis verði gefinn kostur á að fá neyðarlán hjá Lánasjóðnum sem nemur allt að 500.000 kr, til greiðslu án tafar eða í hlutum eftir ósk námsmannsins. Þetta lán verði veitt án kröfu um ábyrgðarmenn og á lægstu lánavöxtum LÍN, með venjulegum greiðsluskilmálum sjóðsins. Þessi upphæð byggir á þeirri forsendu námslána að námsmenn hafi um milljón króna í tekjur á ári hverju til að brúa bilið milli framfærsluláns og raunverulegs framfærslukostnaðar. Í ljósi þróunar gengis krónunnar er ljóst að sjálfsaflafé námsmanna hefur rýrnað að virði erlendis um helming frá því sem var þegar reglur LÍN voru endurskoðaðar í vor. Námsmenn erlendis eru um 3.000 talsins og má því reikna með lánveitingu að upphæð að hámarki 1.500 milljónir kr. vegna þeirra aðgerða sem SÍNE leggur til, eða sem nemur 25% af framlögum til sjóðsins í fjárlagafrumvarp 2008, 19% af framlögum til sjóðsins í fjárlagafrumvarpi 2009. - Námslán skiptinema erlendis verði endurskoðuð miðað við núverandi gengi, í stað þess að framfærsla þeirra sé umreiknuð á gengi 1. júlí 2008 líkt og reglur LÍN gera ráð fyrir. - Frádrættir frá námslánum verði reiknaðir á gengi útborgunardags en ekki á gengi 1. júlí 2008, eins og reglur LÍN gera ráð fyrir. Með þessu er tryggt að frádráttarliðir reiknast ekki á mun dýrara gengi en sjálft námslánið. - Námsmenn erlendis á fyrsta ári fái skólagjaldalán vetrarins greidd í upphafi annar, en ekki í lok árs eins og nú er gert, og skólagjöld þeirrar annar sem nú er hafin verði greidd að fullu nú þegar. Þetta er til samræmis við réttindi námsmanna sem komnir eru lengra í námi. - Ferðakostnaðarlán verði hækkuð miðað við gengisþróun. Upphæð ferðakostnaðarláns í reglum LÍN er í íslenskum krónum og dugar í dag engan veginn fyrir flugfargjöldum. - Námsmenn erlendis sem orðið hafa fyrir skakkaföllum og álagi vegna atburða síðustu vikna fái sérstakt tillit við mat á ástundun náms svo ekki komi til skerðingar eða niðurfellingar lána ef árangur þeirra í námi er minni en ætlað var.
Mest lesið Ástæða fyrir því að genaumræðan hafi ekki náð mikilli útbreiðslu Innlent Veðurvaktin: Biðja fólk að halda sig heima í kvöld Veður Karlmaður lést í Bláa lóninu Innlent Hlýni á föstudag og snjórinn geti horfið í næstu viku Veður Færeyingar marka leið fyrir risastór neðansjávargöng Erlent Ráðgjafinn ráðinn tveimur dögum eftir að grennslast var fyrir um málið Innlent Stærsti fellibylur í sögu Jamaíka Erlent Ungur Miðflokksmaður gengst við rasisma og segir af sér Innlent Flugmaðurinn sem fórst millilenti oft í Reykjavík Innlent „Alvöru“ jólasveinn gisti á Hótel Rangá Innlent Fleiri fréttir Ástæða fyrir því að genaumræðan hafi ekki náð mikilli útbreiðslu Ráðgjafinn ráðinn tveimur dögum eftir að grennslast var fyrir um málið „Alvöru“ jólasveinn gisti á Hótel Rangá Vesturbæjarlaug opnuð enn eina ferðina eftir viðgerðir Verklagi ábótavant og krefur ríkislögreglustjóra skýringa Mæla með því að farþegar reiði sig ekki á tímaáætlanir Snjókoman mikla, ábótavant verklag ríkislögreglustjóra og jólasveinamót Karlmaður lést í Bláa lóninu Biðu í fjóra tíma úti á braut og aðra fjóra við farangursbeltin Kærðu umdeildar framkvæmdir allt of seint Skellt í lás í sundlaugum borgarinnar vegna veðurs Reglur brotnar og þjónusta sem bjóða ætti út Þarf að borga bætur þrátt fyrir breytingar á hlaupahjólinu Hvatt til varúðar vegna snjóflóðahættu á suðvesturhorninu Meiri kvika en í síðasta gosi Eldur í blokk við Ljósheima Flugmaðurinn sem fórst millilenti oft í Reykjavík Halla leiðir krabbameinsráð ráðherra Snjókomumet og umferðaröngþveiti Segir sameiginlegum gildum Norðurlanda ógnað Fjölmargir farþegar fastir í flugvélum á Keflavíkurflugvelli Ungur Miðflokksmaður gengst við rasisma og segir af sér Sturlað ástand og United vettlingar prjónaðir í bílnum Mesta snjódýpt í Reykjavík sem mælst hefur í október Viðbragðsaðilar í mikilli hættu vegna bíla á sumardekkjum Bílar út af veginum á Reykjanesbraut Vill heimila Samkeppniseftirlitinu að ráðast í húsleitir Snjókoman rétt að byrja Píratar berjist gegn „rísandi bylgju lýðskrums og fasisma“ Skvísur geti virkað sem hálfgerðir þroskaþjófar Sjá meira