Segja Björgólf Thor fara með rangt mál 27. október 2008 16:22 Davíð Oddsson seðlabankastjóri.
Í bréfi til bankastjórnar Seðlabanka Íslands mánudaginn 6. október sl. kynnti bankastjórn Landsbanka Íslands að bankinn þyrfti fyrirgreiðslu að fjárhæð 200 milljónir punda frá Seðlabanka Íslands vegna útstreymis sem orðið hefði í útibúi þeirra í Bretlandi auk 53 milljóna punda láns vegna dótturfélags Landsbankans í Lundúnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum. Þar segir ennfremur: „Verulegt útstreymi var úr útibúinu helgina á undan. Í samtölum við forsvarsmenn bankans kom fram að jafnvel þótt umbeðin fjárhæð fengist væri alls ekki víst að hún dygði og líklegt að fjárþörfin gæti á örskömmum tíma hækkað verulega, jafnvel margfaldast. Tilefni beiðninnar í bréfi Landsbankans 6. október var útstreymið af innlánsreikningum. Ekki var minnst á flýtiafgreiðslu breska fjármálaeftirlitsins. Af framangreindum ástæðum er augljóst að sú fullyrðing Björgólfs Thors Björgólfssonar að 200 milljóna punda fyrirgreiðsla Seðlabanka Íslands hefði leyst allan vanda Landsbanka Íslands á þessum tíma stenst ekki. Eins er frásögn hans af rás atburða röng. Á þessum dögum virtist enn líklegt að Seðlabankinn yrði að fylgja eftir ákvörðun ríkisstjórnar Íslands um hlutafjárframlag í Glitni að fjárhæð 600 milljónir evra. Einnig hafði verið ákveðið að höfðu samráði við forsætisráðherra að lána Kaupþingi 500 milljónir evra til nokkurra daga í þeim tilgangi að aðstoða þann banka við að mæta kröfum breska fjármálaeftirlitsins og annarra þarlendra stjórnvalda vegna stöðu dótturfyrirtækis þess banka í Lundúnum. Líkleg framlög Seðlabankans vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um Glitni og fyrirgreiðsla við Kaupþing höfðu þá þegar sett miklar byrðar á gjaldeyrisvarasjóð þjóðarinnar og varasamt var að ganga lengra í þeim efnum."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira