Innlent

Gylfi fer fyrir hópi sem skoðar vanda lántakenda

Gylfi Arnbjörnsson.
Gylfi Arnbjörnsson.

Jóhanna Sigurðardóttir félags- og tryggingamálaráðherra hefur skipað fimm manna sérfræðingahóp sem falið hefur verið að skoða hvort og þá hvaða leiðir séu færar til að bregðast við vanda lántakenda vegna verðtryggingar.

Hópinn skipa Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur og formaður Aþýðusambands Íslands, sem er formaður starfshópsins. Aðrir fulltrúar eru Þorkell Helgason stærðfræðingur, Vilborg Helga Júlíusdóttir hagfræðingur, Edda Rós Karlsdóttir hagfræðingur og Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur í félags- og tryggingamálaráðuneytinu, starfar með hópnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×