ÍAV segja upp 151 27. október 2008 14:14 Íslenskir aðalverktakar er á meðal stærstu verktakafyrirtækja landsins.
Íslenskir aðalverktakar hafa sagt upp 151 starfsmanni í „ljósi mikils samdráttar í íslensku efnahagslífi." Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að mikil óvissa sé um öflun nýrra verkefna og sökum þess neyðist ÍAV til þess að grípa til uppsagna. „Í ljósi mikils samdráttar í íslensku efnahagslífi undanfarna mánuði og vegna efnahagslegra afleiðinga fjármálakreppunar, hefur orðið mikill samdráttur á verktaka- og fasteignamarkaði," segir í tilkynningunni frá ÍAV. „Mikil óvissa er um öflun nýrra verkefna og sökum þess neyðist ÍAV til þess að segja upp 151 starfsmanni. Þá verður 19 starfsmönnum til viðbótar boðin önnur störf innan félagsins eða lækkað starfshlutfall. Uppsagnirnar ná til starfsmanna úr öllum þeim starfsstéttum er starfa hjá félaginu og hefur Vinnumálastofnun verið tilkynnt um uppsagnirnar. Eftir uppsagnirnar munu yfir 400 manns starfa hjá ÍAV auk nokkur hundruð starfsmanna undirverktaka." Þá segir að starfsfólki sem hefur verið sagt upp störfum verði veitt ráðgjöf varðandi réttindi sín og það aðstoðað við atvinnuleit og aðra tengda þætti. „Forsvarsmenn ÍAV munu leitast við að liðsinna öllum sínum starfsmönnum hvað best þeir geta," segir einnig. „Á örfáum mánuðum hafa rekstrarforsendur fyrirtækja í verktaka- og byggingariðnaði snúist hratt til verri vegar. Eftir fall bankanna hefur staðan versnað enn frekar og ríkir óvissa um framhald margra verkefna. Opinberir aðilar hafa hætt við eða frestað fyrirhuguðum útboðum á ný framkvæmdum og einstaklingar og fyrirtæki hafa lagt til hliðar áform sín um framkvæmdir að sinni. Í ljósi aðstæðna er það mat stjórnenda ÍAV að við blasi verulegur samdráttur á verktaka- og byggingamarkaði á næstu mánuðum." „Eftir sem áður verður ÍAV einn af burðarásum íslensks verktaka- og byggingariðnaðar með yfir 400 starfsmenn á launaskrá auk nokkur hundruð starfsmanna undirverktaka. ÍAV vinnur að mörgum stórum og áhugaverðum verkefnum og verður félagið áfram virkur þátttakandi á verktakamarkaði," segir að lokum í tilkynningunni.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira