Ódýrari lyf á Íslandi en í Danmörku 4. febrúar 2008 13:25 Myndin tengist umfjöllunarefni fréttarinnar ekki beint.
Lyfjaverð á Íslandi, heildsöluverð jafnt sem smásöluverð, er ákveðið af ríkinu. Við ákvörðun þess hefur verið miðað við meðalverð viðkomandi lyfs á öðrum Norðurlöndum. Síðustu misseri hefur verið nokkur umræða um hátt lyfjaverð á Íslandi, sérstaklega í samanburði við Danmörku. Samtök verslunar og þjónustu gerðu könnun á þessu þann 1.febrúar. Við samanburð á verði 20 kostnaðarsömustu lyfjanna í apótekum í Danmörku og á Íslandi má sjá að þau eru að meðaltali 7,5% ódýrari hér á landi en í Danmörku. Til viðbótar veita íslensk apótek mismunandi afslátt frá opinberu verði vegna samkeppni þeirra á milli en í Danmörku er bannað að veita afslátt af lyfseðilsskyldum lyfjum þannig að munurinn er að lágmarki þessi 7,5%. Þess ber þó að geta að einstök lyf eru mun dýrari hér á landi og önnur mun ódýrari, auk þess sem gengismunur á hverjum tíma hefur áhrif. Sem dæmi má nefna að daginn sem verðsamanburðurinn var gerður kostuðu 30 töflur af Casodex, hormónalyfi sem er algengt í krabbameinsmeðferð, sem svarar 56.672 kr. í Danmörku en 48.514 kr. á Íslandi. Þar er verðmunurinn 8.158 kr. íslenskum apótekum í vil. Aftur á móti kostuðu 98 töflur af Simvastatin, lyfi sem er blóðfitulækkandi, sem svarar 604 kr. í Danmörku en 4.239 kr. á Íslandi. Þær eru með öðrum orðum 3.635 kr. dýrari hér en í Danmörku.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira