Krapastífla í Elliðaám rakin til kuldakastsins 4. febrúar 2008 10:40
Búið er að opna vegi við ósa Elliðaánna aftur en þeim þurfti að loka í morgun vegna krapastíflu sem myndaðist í ánum. Krapastífluna má rekja til kuldakastsins að undanförnu og þegar Elliðárstöðin var ræst aftur í morgun flæddi áin yfir bakka sína. Vegna flóðsins þurfti lögregla að loka Rafstöðvarvegi í Elliðaárdal og urðu töluverðar tafir á morgunumferðinni af þeim sökum. Starfsmenn Orkuveitunnar voru kallaðir á vettvang enda heyra árnar undir fyrirtækið. Að sögn Eiríks Hjálmarssonar, upplýsingafulltrúa Orkuveitunnar, má rekja krapastífluna til kuldakastsins að undanförnu. Í kuldanum myndaðist svokallaður grunnstingull sem eru ísnálar sem sökkva til botns. Þær safnast upp og grynnka þannig farveginn. Að sögn Eiríks er Elliðaárstöðin aðeins keyrð virka daga og þegar hún var ræst upp aftur í morgun jókst rennslið í ánum. Vatnið mætti hins vegar mótstöðu í krapastíflunni og því flæddu árnar yfir bakka sína skammt fyrir neðan rafstöðina. Gröfumaður var kallaður á vettvang og hrærði hann í krapastíflunni þannig að vatnið komst í eðlilegan farveg. Var umferð hleypt aftur á Rafstöðvarveginn um tíuleytið. Að sögn Eiríks munu starfsmenn Orkuveitunnar fara upp með Elliðaánum og kanna hvort krapastíflur hafi myndast víðar í ánum. Hann segir stíflur sem þessar vel þekktar í íslenskum ám og þetta hafi áður komið fyrir í Elliðaánum.
Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Fleiri fréttir Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Sjá meira