Innlent

RÚV-frumvarpi frestað

Menntamálanefnd Alþingis ákvað á fundi sínum í daga að fresta fram á næsta ár að takmarka stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Nefndin hefur haft frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, til umfjöllunar og hefur nú ákveðið að afgreiða einungis hluta af frumvarpinu sem lög fyrir áramót. Sá hluti snýr að breyttri gjaldtöku og svokölluðum nefskatti.

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir sátt hafa skapast í nefndinni um ákveðin millileik. Gjaldtökunni verður breytt og tekinn upp 17.900 króna nefskattur. Sú upphæð verður væntanlega endurskoðað. Öllu öðru hafi verið slegið á frest þar á meðal takmörkun Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði, að sögn Höskulds. Þau mál verði tekin upp á nýjan leik fljótlega eftir áramót.

,,Við erum búin að sitja yfir málinu og fá mjög mikið af umsögnum sem benda til þess að frumvarpið krefjist frekari vinnu. Í rauninni má segja að það hreinlega gafst ekki tími til að klára málið fyrir jól þannig að það væri vel gert. Þess vegna er því slegið á frest fram í febrúar," segir Katrín Jakobsdóttir varaformaður Vinstri grænna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×