Kominn út fyrir tólf mílur á stolnu björgunarskipi 19. desember 2008 19:26
Íslendingur um þrítugt, sem stal Ingibjörgu, fjörutíu tonna björgunarskipi, frá Höfn í Hornafirði í morgun, stefndi hraðbyri til Evrópu þegar hann fékk á sig brotsjó suður af landinu. Hann sneri þá við en með ólíkindum þykir að manninum, sem hafði enga skipstjórnarreynslu, skyldi takast að sigla tvívegis um Hornafjarðarós í mikilli ölduhæð með stýrið læst. Það var um tíuleytið í morgun sem heimamenn uppgötvuðu að Ingibjörg, björgunarskip Slysavarnadeildar Landsbjargar á Hornafirði, var horfið úr frá Höfn en það hafði snemma um morguninn verið tekið ófrjálsri hendi. Það gerði Íslendingur um þrítugt, alls óvanur sjómennsku og siglingum, en hann stefndi þessu hraðskreiða björgunarskipi áleiðis til Evrópu. Hann var kominn út fyrir tólf mílna landhelgi Íslands suður af Lóni þegar hann fékk á sig brotsjó og virðist þá hafa guggnað á ævintýrinu. Hann sneri við og sigldi aftur inn til Hornafjarðar en þangað kom hann um ellefuleytið. Hann hafði þá tvívegis siglt um Hornafjarðarós, einhverja erfiðistu siglingaleið sem finnst hér við land, en hún var þá lokuð öðrum skipum vegna mikillar ölduhæðar, sem var um fimm metra há. Maðurinn var handtekinn og kom þá í ljós að hann var búnn að skrifa dagbók, en samkvæmt henni var hann búinn að hafast við í björgunarskipinu frá því á þriðjudag. Í dagbókinni var að finna nákvæmar lýsingar á öllum hans athöfnum þennan tíma, m.a. lýsingar á því hvernig hann braust inn í skipið og hvernig hann las sér til um virkni þess í bókum sem eru um borð. Hann náði þó ekki að kveikja á stýri skipsins og fór því inn og út innsiglinguna um Hornafjarðarós með því að beita vélunum einum saman, sem þykir með ólíkindum. Smávægilegar skemmdir urðu framan á skipinu en það er sjófært. Við yfirheyrslu hjá lögreglunni á Höfn í dag gat maðurinn enga skýringu gefið á því athæfinu sínu né hvert hann ætlaði að sigla.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Sjá meira