Innlent

Mótmælt með ellefu mínútna þögn á Austurvelli

Mótmælt verður á austurvelli á morgun líkt og undanfarna ellefu laugardaga. Í þetta sinn með ellefu mínútna þögn. Í tilkynningu frá aðstandendum mótmælanna segir að kröfurnar séu skýrar. Stjórn Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins víki tafarlaust, og að kosið verði sem fyrst.

Ástæða þagnarinnar er að því er fram kemur í tilkynningunni sú ósk fólks að geta gefið börnum sínum gleðileg og friðsæl jól. Fyrstu helgina eftir jól, þann 27. desember verði fundurinn aftur færður í kröftugra form og þrýstingur á stjórnvöld aukinn.

Mótmælin hefjast klukkan 15. og sem fyrr er Hörður Torfason fundarstjórnandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×