Innlent

Stýrivaxtahækkun hluti af samkomulagi við IMF

Stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands upp í 18 prósent í dag er hluti af samkomulagi sem gert var við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þetta kom fram í máli Davíðs Odddssonar, formanns stjórnar Seðlabankans, sem færði rök fyrir þeirri ákvörðun bankans að hækka vexti.

Í rösktuðningnum kom enn fremur fram að ríkisstjórnin hefði gert samkomulag við sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í síðustu viku. „Í samkomulaginu, sem lagt verður fyrir framkvæmdastjórn hans til staðfestingar á næstu dögum, felst m.a. að Seðlabankinn skuli þá hafa hækkað stýrivexti í 18% sem nú hefur verið gert. Við þá ákvörðun er vísað til þess að við hrun bankakerfisins og harkalegar ytri aðgerðir sem í kjölfarið fylgdu lamaðist gjaldeyrismarkaður þjóðarinnar á svipstundu. Þótt aðstæður hafi síðan lagast nokkuð eru takmarkanir á gjaldeyrisviðskiptum óhjákvæmilegar,“ segir í rökstuðningnum.

Þá segir stjórn Seðlabankans að mikilvægt sé að koma gjaldeyrisviðskiptum á ný í eðlilegt horf og styðja við gengi krónunnar. Þótt raungengið sé mun lægra en fengist staðist til lengdar sé talið óhjákvæmilegt að styrkja grundvöll krónunnar á gjaldeyrismarkaði með aðhaldssömu vaxtastigi þegar hömlur á gjaldeyrisviðskiptum verða afnumdar í áföngum.

„Neikvæðir raunvextir gætu veikt þann grundvöll. Samdráttur eftirspurnar mun leiða til þess að afgangur myndast fljótt á vöru- og þjónustuviðskiptum við útlönd. Framleiðsluslaki og jafnvægi eða afgangur í utanríkisviðskiptum munu stuðla að hækkun á gengi krónunnar að því tilskildu að traust hafi skapast á gjaldeyrismarkaði. Gangi spár eftir verða stýrivextir lækkaðir í samræmi við hratt lækkandi verðbólgu,“ segir bankastjórnin. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×