Hjálpargögn Rauða krossins komin til Burma 9. maí 2008 16:38
Þrátt fyrir erfiðleika við að koma neyðarvarningi til Burma lenti flugvél Rauða krossins hlaðin hjálpargögnum í Yangoon höfuðborg Burma (einnig þekkt sem Rangoon í Burma) seint í gærkvöldi. Flogið var frá neyðarbirgðastöð Alþjóða Rauða krossins í Kuala Lumpur. Önnur vél með hjálpargögn fylgdi í kjölfarið nú í morgun. Alþjóðlegir sérfræðingar Rauða krossins eru að störfum í Burma og von er á enn fleiri sendifulltrúum til að styrkja Rauða krossinn í neyðaraðgerðunum. Um 27.000 sjálfboðaliðar Rauða krossins í Burma hafa haldið hjálparstarfinu uppi frá því hamfarirnar urðu fyrir einni viku. Sérfræðingar frá systurfélögum Rauða krossins í nágrannaríkjunum sem eru sérþjálfaðir í neyðarviðbrögðum á svæðinu eru þegar komnir til landsins. Utanríkisráðuneytið veitti í gær 7,7 milljónir íslenskra króna í hjálparstarf Alþjóða Rauða krossins á hamfarasvæðunum. Áður hafði 10 milljóna króna framlag frá Rauða krossi Íslands verið sent til hjálparstarfsins og stendur söfnun Rauða krossins enn yfir. „Það er mjög mikilvægt að fá stuðning sem þennan frá ríkisstjórninni og almenningi til að koma að aðstoð strax á fyrstu stigum hjálparstarfsins," segir Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands. „Þetta framlag sýnir einnig samhug íslensku þjóðarinnar með nauðstöddum íbúum í Mjanmar [Burma]." Rauði krossinn mun notast jafnt við leiguflug og venjulega flugfrakt til að koma nauðsynlegum hjálpargögnum sem fyrst til Burma og mun einnig leitast við að koma neyðarvarningi frá nágrannaríkjunum landleiðina inn í landið. Þeim sem vilja styðja fórnarlömb fellibylsins er bent á vefsíðuna raudikrossinn.is, reikning hjálparsjóðs Rauða krossins í banka 1151, hb. 26, reikning 12, kt. 530269-2649, og söfnunarsímann 907 2020. Við hvert símtal gjaldfærast 1.200 kr. á næsta símreikning. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Rauða krossinum.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sjá meira