Tekið hart á fíkniefnamáli á Bifröst 29. febrúar 2008 09:32 „
Það verður tekið hart á þessu máli því við líðum ekki þennan ófögnuð hérna," segir Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst um fíkniefnafund lögreglunnar í nemendaíbúðum við háskólann í gærkvöldi. Fjölmennt lögreglulið úr Borgarfirði, Dölum, fíkniefnalögreglunni í Reykjavík og úr sérsveit ríkislögreglustjóra, ásamt tollgæslumönnum og þremur fíkniefnahundum, gerði húsleit á staðnum og fundust kannabisefni, amfetamín og kókaín neysluskömmtum í þremur íbúðum við háskólann. Leitin var gerð í samráði við skólayfirvöld og voru sérsveitarmenn vopnaðir, þar sem óttast var að vopn væru í einni íbúðinni en svo reyndist þó ekki. „Við stöndum með löreglunni í því að gera þennan ófögnum útlægan í skólanum. Svona er samfélagið orðið og þetta er alls staðar í öllum skólum," segir Ágúst enn fremur um málið. Aðspurður segir Ágúst málið snerta þrjá nemendur sem bjuggu í íbúðunum en engin ákvörðun hafi verið tekin um framtíð þeirra við skólann. Þá vildi hann ekkert segja til um hvort nemendurnir yrðu kallaðir fyrir í dag. „Þetta er mjög alvarlegt mál og sorglegt að það hafi komið upp," segir Ágúst. Aðspurður vildi hann ekkert segja til um það hvort ábendingin um fíkniefnin hefði komið frá skólayfirvöldum eða hvernig lögregla hefði komist á snoðir um efnin og vísaði á lögregluna.
Mest lesið Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira