Innlent

Gagnrýndi málflutningsaðferðir saksóknara

MYND/Anton Brink

Jakob Möller, verjandi Tryggva Jónssonar í Baugsmálinu, gagnrýndi líkt og verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar málflutningsaðferðir ákæruvaldsins fyrir Hæstarétti.

Eins og fram hefur komi hélt málflutningur í Baugsmálinu áfram í dag og eftir að Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, hafði lokið máli sínu tók Jakob við. Skjólstæðingur hans er sakaður um bókhaldsbrot og fjárdrátt í starfi aðstoðarforstjóra Baugs þegar félagið var almenningshlutafélag.

Jakob krafðist sýknu yfir Tryggva en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa og þá skilorðsbundins dóms. Gagnrýndi hann hvernig settur saksóknari, Sigurður Tómas Magnússon, hefði í gær hagað málflutningi sínum með því að leggja fram mikinn fjölda skjala, en greinagerð saksóknara telur ellefu stórar möppur.

Þá sagði hann saksóknara hafa vísað ítrekað í gær til gagna í málinu án þess að fjalla um sönnunargildi þeirra. „Þessi vinnubrögð, að koma í veg fyrir að vörnin geti áttað sig á þeim sönnunargögnum sem lögð eru fram, eru alvarlegt brot á jafnræði málsaðila," sagði Jakob.

Sagði hann vinnubrögð saksóknara gera varnaraðilum erfiðara að taka á málflutningi saksóknara en um leið auðveldaði þetta þeim verkið þar sem vörnin gæti flutt mál sitt án tillits til þess sem ákæruvaldið hefði sagt. Ekki hefði veirð hægt að fylgja Sigurði Tómasi eftir í gær þegar hann hafi vísað fram og til baka í skjöl.

Um ákæruatriðin sagði Jakob meðal annars að ekkert hefði komið fram um að Tryggvi hefði sýnt ásetning eða refsivert gáleysi eins og saknæmisstig kvæðu á um. Settum saksóknara hefði verið tíðrætt um að sakborningar „hlytu" að hafa gert hitt og þetta en deilt væri um hvort tilteknir atburðir hefðu átt sér stað.

Eftir hádegi var svo komið að Brynjari Níelssyni, verjanda Jóns Geralds Sullenberger, að flytja mál sitt en málið verður að því loknu lagt í dóm Hæstiréttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×