Þriggja ára dómur yfir Kompás-lögmanni staðfestur 15. maí 2008 16:06
Hæstiréttur staðfesti í dag þriggja ára fangelsisdóm yfir Róberti Árna Hreiðarssyni, fyrrverandi lögmanni, fyrir kynferðisbrot. Róbert Árni var í september síðastliðnum dæmdur fyrir kynferðisbrot gagnvart fjórum stúlkum og sömuleiðis fyrir vörslu barnakláms. Hann var hins vegar sýknaður af vörslu barnakláms í Hæstarétti. Róbert var meðal annars sakfelldur fyrir að hafa tælt hluta stúlknanna til kynferðismaka við sig gegn peningagreiðslum en hann komst í samband við þær með því að villa á sér heimildir á Netinu. Héraðsdómur sagði ljóst Róbert hefði nýtt sér yfirburðastöðu sína í krafti aldurs síns og reynslu gagnvart unglingsstúlkunum sem voru á viðkvæmu kynþroskaskeiði. Í svipaðan streng tók Hæstiréttur og sagði enn fremur að brot hans hafi verið ítrekuð og brotavilji einbeittur. Róbert var starfandi lögfræðingur þegar brotin áttu sér stað en hann hafði meðal annars annast hagsmunagæslu fyrir brotaþola í sakamálum og sinnt verjandastörfum í kynferðisbrotamálum. Fréttaskýringarþátturinn Kompás fjallaði um mál hans síðastliðið haust. Róbert var sviptur lögmannsréttindum sínum með dómi héraðsdóms síðastliðið haust og var sá úrskurður staðfestur í dag. Auk þessa var hann dæmdur til að greiða stúlkunum á bilinu 300 þúsund krónur til eina milljón í miskabætur, samanlagt 2,4 milljónir króna.
Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Erlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Fleiri fréttir Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Sjá meira