Hundruð útlendinga fluttir á brott frá Tsjad 3. febrúar 2008 18:45 Sjötíu og fjórir útlendingar voru fluttir úr landi í franskri herflugvél sem fór frá Libreville í dag. MYND/AFP
Frakkar fluttu hundruð útlendinga frá Tsjad í dag. Barist er í höfuðborg landsins en forsetinn verst enn í höll sinni. Frakkar eru með um 14 hundruð manna her í Tsjad. Hann hefur ekki blandað sér í orrustuna sem nú fer fram við forsetahöllina í N'Djamena, en franskir hermenn sáu hins vegar um brottflutning útlendinga úr landinu í dag. Þeim var safnað saman á þremur stöðum í höfuðborginni í gær og voru svo sóttir í morgun. Um miðjan dag fóru 400 manns, aðallega franskir ríkisborgarar, með fjórum flugvélum áleiðis til Frakklands. Frakkar segja að Idriss Deby forseti hafi enn stjórn á hersveitum sínum og verjist í forsetahöllinni. Þykkur reykur sem lá yfir borginni bar vitni um mikinn bardaga með bæði byssum og þungavopnum. Um fimmtán hundruð uppreisnarmenn umkringja höllina. Gaddafí Líbýuleiðtogi mun bera boð á milli forsetans og uppreisnarmanna - en það virtist ekki verða til að draga úr áköfum bardögum sem héldu áfram í dag.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira