Innlent

Leggjast gegn hugmyndum um varalið

Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra Jafnaðarmanna mótmælti við kínverska sendiráðið á dögunum en nú er áformum Björns Bjarnasonar mótmælt.
Anna Pála Sverrisdóttir, formaður Ungra Jafnaðarmanna mótmælti við kínverska sendiráðið á dögunum en nú er áformum Björns Bjarnasonar mótmælt.

Ungir jafnaðarmenn leggjast gegn hugmyndum Björns Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, um varalið lögreglu. Í tilkynningu frá þeim segjast þeir hafna hugmyndinni og hvetja þeir til að almenn löggæsla verði þess í stað efld.

„Ungir jafnaðarmenn hafna hugmyndum dómsmálaráðherra, Björns Bjarnasonar, um varalið lögreglu og hvetja þess í stað til að almenn og sýnileg löggæsla verði efld. Björn hefur lýst því yfir að stofnun varaliðs verði rædd við endurskoðun lögreglulaga."

Ungir jafnaðarmenn biðla því til löggjafans um að hann hafi eftirfarandi í huga komi hugmyndin til tals:

„Atburðir síðastliðinnar viku hafa sýnt hversu mikilvægt er að lögreglufólk sé vel þjálfað og geti staðist álag í starfi sínu af fagmennsku. Með því að leggja til stofnun varaliðs með hálf-þjálfuðum mannskap er gert lítið úr mikilvægi menntunar og hæfni. "

Þá er vilja jafnaðarmenn meina, að verði lagt upp með að varalið sé jafnvel í stakk búið og fullþjálfað lögreglufólk, væri nær að verja peningunum í að fjölga í almennri löggæslu. „Á því er brýn þörf eins og Samfylkingin hefur bent á, m.a. í borgarstjórn. Mikill kostnaður myndi fylgja stofnun nokkur hundruð manna varaliðs og sjá Ungir jafnaðarmenn ekki þörfina á þeim útgjöldum."

Að endingu segja þeir alvarlegt umhugsunarefni að varalið sem innihéldi meðal annars björgunarsveitarfólk, „gæti grafið undan því gífurlega mikilvæga starfi sem þúsundir manna vinna í sjálfboðavinnu fyrir björgunarsveitirnar. Þessu mikilvæga fjöreggi sem almannasamstaða er um, ætti ekki að kasta frá sér."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×