Innlent

Sjaldgæf andategund á Djúpavogi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Sjaldgæfur fugl, hvítönd, sást á Fýluvogi við Djúpavog um hvítasunnuna. Það var Stefán Guðmundsson hafnarvörður sem tilkynnti um öndina og náði Andrés Skúlason fuglaáhugamaður ágætum myndum af henni. Kemur þar berlega í ljós að hún sker sig rækilega úr innan um annað fiðurfé á voginum.

„Þetta er ein af þremur tegundum fiskianda sem hingað koma. Þetta er flækingur, steggur, og mjög sjaldgæf tegund hér," útskýrir Andrés. Hann segir það geysilega gaman að fá nýja fugla inn á svæðið. „Svo veit maður hins vegar aldrei hvað þeir stoppa lengi. Hún var með hópi skúfanda sem er ólíkur fugl en þær taka stundum upp á því að elta aðrar tegundir," segir Andrés enn fremur. Hann segir karlöndina mun skrautlegri í útliti en kvendýrið.

Vonast Andrés til að hvítöndin doki við fram yfir næstu helgi en dagana 16. - 18. maí fer landsmót fuglaáhugamanna fram á Djúpavogi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×