Vill rannsaka rannsókn Baugsmálsins SB skrifar 10. júní 2008 10:51 Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Vill rannsókn á rannsókn Baugsmálsins.
Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, vill sjálfstæða rannsókn á Baugsmálinu. "Ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvalds og eðlilegt að hann myndi stjórna rannsókn á málinu," segir hann. Áður hefur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagt að íslensk stjórnvöld hljóti að draga lærdóma af útkomu Baugsmálsins. "Hæstiréttur veitti öllum sem komu að útgáfu þessa tiltekna reiknings sýnilega jafna og réttláta málsmeðferð. Bersýnilegt er að dómstólar kveða upp úr um að umfang rannsóknarinnar og ákæranna sem gefnar voru út upphaflega var alls ekki í samræmi við tilefnið," sagði hún í yfirlýsingu. Aðeins eitt dæmi er í íslenskri réttarsögu um að sjálfstæð rannsóknarnefnd á vegum þingsins hafi verið skipuð. Það var árið 1955 í svokölluðu Okurlánamáli. "Það er heimild í 39. grein stjórnarskrárinnar að Alþingi geti skipað nefndir alþingismanna til að rannsaka mikilvæg mál er almenning varðar," segir Sigurður Líndal lagaprófessor. Hann segist aðeins reka minni til að sú heimild hafi verið notuð einu sinni. Árið 1955. Baugsmálið er orðið hluti af réttarsögunni og því held ég að best sé að fela réttarsögufræðingum skoðun Baugsmálsins," segir Sigurður spurður um tillögu Lúðvíks. Sigurður er menntaður réttarsögufræðingur og bætir við: "...án þess að ég sé að bjóða mig sérstaklega fram."
Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Fleiri fréttir „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Sjá meira