Mestu flóð og skriður í áratugi 17. september 2008 12:13
Norðanverðir Vestfirðir með sex þéttbýliskjörnum, eru vegasambandslausir eftir að mestu flóð og skriður í áratugi, rufu eða flæddu yfir þjóðvegina í óveðri í nótt. Á annað hundrað björgunarsveitarmenn voru kallaðir til aðstoðar víða um land og um tíma var samhæfingastöð Almnannavarna í Skógarhlíð mönnuð til að stjórna aðgerðum. Á norðanverðum Vestfjörðum rauf vatnsflaumur þjóðveginn innst í Ísafjarðardjúpi, sem var verið að opna á ný, og aurskirður lokuðu Þorskafjarðarheiði. Sunnantil á fjörðunum er Barðastrandarvegur ófær nema léttum smábílum vegna vatnsskemmda. Stór aurskriða lokar Örlygshafnarvegi og ófært er frá Bíldudal yfir í Trostansfjörð og stór flutningabíll sem valt í Arnarfirði lokar svo leið þar um. Dynjandisheiðin er ófær vegna aurskriða. Ljóst er að tjónið á þessum slóðum hleypur á mörgum milljónum króna og mun vera það mesta í einu óveðri í áratugi. Rúður brotnuðu sums staðar í höfuðborginni í veðurhamnum.MYND/Stöð 2 Björgunarsveitarmenn sinntu fjölmörgum útköllum vegna foks á höfuðborgarsvæðinu í nótt, slökkviliðið þurfti að dæla vatni úr tugum húsa, rúður brotnuðu sums staðar og björgunarmenn þurftu að hemja fjúkandi flugvél á Reykjavíkurflugvell, svo eitthvað sé nefnt. Svipaða sögu er að segja frá Suðurnesjum þar sem meðal annars bíll fauk út í skurð og gámur inn á Hafnargötuna í Keflavík. Sömuleiðis var annríki hjá björgunarmönnum á Akranesi, í Borgarnesi, á Rifi og í Ólafsvík flæddi vatn og aur um götur, alveg upp á gangstéttir. Laust upp úr klukkan tvö skall á mikið hvassviðri á Akureyri og urðu þar töluverðar skemmdir á trjágróðri. Víða brotnuðu stórar greinar af trjám og sumstaðar klofnuðu þau, og blasir hreinsunarstarf við bæjarstarfsmönnum. Sárafá skip eru á sjó, og voru þau ýmist í vari eða héldu sjó í nótt, meðal annars nokkur flutningaskip suður af landinu. Þrátt fyrir að vindhraði hafi sums staðar farið upp undir 40 metra á sekúndu í hviðum og vatnselgur hafi víða verið mikill er ekki vitað um slys á fólki enda sárafáir á ferðinni. Tafir hafa orðið i innanlandsflugi í morgun vegna ókyrrðar í lofti en búist er við að flugskilyrði batni eftir því sem líður á daginn. Töluvert rignir enn á Suðaustur- og Austurlandi með talsverðu hvassviðri og er enn skriðuhætta í Hvalnesskriðum á Austfjörðum, sem Vegagerð og lögregla vara ökumenn við.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira