Felur fyrrverandi dómurum að rannsaka árás í Kjúklingastræti 16. apríl 2008 14:21 MYND/GVA
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur falið tveimur fyrrverandi hæstaréttardómurum að fara yfir árás sem gerð var á íslenska friðargæsluliða í Kabúl ári 2004 með þeim afleiðingum að tveir almennir borgarar létust. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar, þingmanns Vinstri grænna. Árni Þór benti að þátttaka Íslendinga í stríðinu í Afganistan hefði verið hvað áþreifanlegust þegar íslenskir friðargæsluliðar fóru til teppakaupa á Kjúklingastræti í Kabúl. Þeir hafi særst í sjálfsmorðsárás og fólk misst lífið í henni. Spurði hann ráðherra hvort íslenska ríkið hefði greitt skaðabætur til fjölskyldna fórnarlambanna tveggja, 11 ára afganskrar stúlku og 23 ára bandarískrar konu. Ef svo væri ekki hvort ráðherra hefði í hyggju að sjá til þess að fjölskyldunum verði greiddar skaðabætur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sagði árásina skelfilegan atburð og mikið áfall fyrir okkur öll. Hún hefði höggvið eftir því að Árni Þór hefði sagt að rekja mætti árásina til starfsemi Íslendinga í Afganistan. Svo væri ekki því þeir sem stóðu fyrir árásinni hefðu borið ábyrgð á henni. Hún hefði í eðli sínu verið hryðjuverk og beinst að friðargæsluliðum og almennum borgurum. Ráðherra sagði að ekki hefðu verið greiddar bætur til fjölskyldna fórnarlambanna þar sem ekki hefðu verið taldar forsendur fyrir því. Hér hefði ekki verið um átök að ræða heldur árás á friðargæsluliðana. Þá sagði ráðherra margt varðandi málið virðast óljóst í augum margra og að málið væri enn í hugum fólks og væri enn óútkljáð. Hún vildi að farið yrði yfir málið í heild sinni og því hefði hún falið Guðrúnu Erlendsdóttur og Haraldi Henryssyni, fyrrverandi hæstaréttardómurum, að vinna úttekt um málið. Meðal þess sem þau myndu gera væri að taka viðtöl við aðila málsins en markmiðið væri að gefa sem heildstæðast yfirlit yfir árásina. Að því loknu gætu íslensk yfirvöld metið atvikin og séð hvort ástæða væri til aðgerða. Fram kemur í tilkynningu fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu vegna málsins að óskað sé eftir því skýrsluhöfundar kanni hvernig með málið var farið og hvort ráðuneytið hafi rækt sínar skyldur og ábyrgð. Einnig er skýrsluhöfundum ætlað að gera tillögur um frekari viðbrögð eða úrbætur ef ástæða þykir til. Óskað hefur verið eftir að skýrsla liggi fyrir fyrir sumarið 2008. Fréttaskýringarþátturinn Kompás var á dögunum í Afganistan og ræddi meðal annars við fjölskyldu afgönsku stúlkunnar sem lést í árásinni. Hægt er að horfa á viðtalið hér.
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Hvít jörð blasti við: „Sálfræðilegt og andlegt gjaldþrot“ Veður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Innlent Fleiri fréttir Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Sjá meira