Árni neitar að tjá sig um ljósmæður 13. september 2008 19:15
Fjármálaráðherra vill ekki tjá sig um kjaradeilu ljósmæðra, né álit utanríkisráðherra um að deilan geti stigmagnast vegna ákvörðunar hans að stefna ljósmæðrum fyrir ólögmæta uppsögn. Öðru tveggja daga verkfalli ljósmæðra lauk á miðnætti í gær og á þriðjudag hefst þriggja daga verkfall. Samningafundur í gær var árangurslaus og nýr fundur boðaður á mánudag. Formaður félags ljósmæðra segir ákvörðun fjármálaráðherra að stefna þeim vegna meintra ólögmætra uppsagna hafa hleypt kergju í þær og gert málið erfiðara. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að það hafi ekki verið klókt útspil hjá Árna að stefna ljósmæðrum og það gæti orðið til þess að deilan stigmagnaðist. Ekki náðist í fjármálaráðherra í dag, en Böðvar Jónsson aðstoðarmaður hans sagði að ráðherra ætlaði ekki að tjá sig um deiluna og ekki heldur um ummæli utanríkisráðherra. Verkfall ljósmæðra var rætt á Alþingi í gær. Fjármálaráðherra var ekki þar, heldur skráður með fjarvist og var í Hrunaréttum. Fréttablaðið náði tali af honum þar og spurði hann út í stefnuna og gagnrýni utanríkisráðherra, en fjármálaráðherra sagði það ekki fara saman að vera í réttum og vera í fréttum. Og bætti við, „Þú náðir bara ekki í mig."
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent Fleiri fréttir Fallegt og ekkert smágos Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Sjá meira